21.11.2006 | 18:29
Stolt mamma
Ég get fullyrt að ég er stolt móðir. Ég fór í "vitnisburð" með bæði Ólöfu Ósk og Jóni Ingva í dag. Vá, ekkert smá dugleg þessi börn okkar. Ólöf Ósk fékk mikið hrós, kennarinn hefur aldrei áður hitt barn sem er að flytja heim frá útlöndum sem ekki hefur þurft auka kennslu í íslensku heldur getur farið beint á sama stað og jafnaldrar, og hún er sú sem sér um þess háttar kennslu í skólanum svo hún veit hvað hún syngur!!! Svo var skvísunni hrósað fyrir jákvæðni, dugnað, áhugasemi og ég veit ekki hvað og hvað. Hún fékk einkunnir í listgreinunum og það var 8,0 og 8,5 í öllum fjórum fögum. Hún þykir fyrirmyndar nemandi í einu og öllu. Ólöf Ósk sagði þegar við komum út; "Mamma, ég sá að þú varst alltaf að þurrka augun!"!!! Hvað er annað hægt.
En eins og ég sagði við hana þá skiptir ekki máli hvað hún gerir eða gerir ekki, ég elska hana fyrir það sem hún er, ekki fyrir það sem hún kann eða gerir. Hún sagðist vita það. Svo er hitt "bara" bónus.
Jón Ingvi fékk líka mikið hrós. Hann fékk fyrir hegðun; "Mjög góð" í öllu nema einu þar fékk hann; "Framúrskarandi" og í ástundun fékk hann; "mjög góð". En ekki vegna þess að hann sé eins og ég var, þæg og góð til að ekki bæri á mér og góð leið til að fela sig. Nei, hann er mjög duglegur að rétta upp hönd og duglegur að svara og tala fyrir framan aðra, og leitar til kennarans þegar eitthvað er. Svo þetta er bara yndislegt.
Já, ég er bara að rifna úr stolti hérna!!!
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 178853
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég sá nú bara í fyrsta skipti sem ég hitti þessar elskur að þau eru æðisleg. Þú getur svo sannarlega verið hreykin af þeim. Greind, góð og skemmtileg. Ég kolféll fyrir þeim eins og þú sást eflaust.
Gurrí (IP-tala skráð) 21.11.2006 kl. 19:28
Til haimingju elskurnar mínar. Ég táraðist við lesturinn. Þetta er ekkert smá!
Valdís (IP-tala skráð) 21.11.2006 kl. 19:36
Takk sætu. Nei, þetta er sko ekkert smá. Yndislegt alveg. Ég veit hverjum ég get þakkað!!
SigrúnSveitó, 21.11.2006 kl. 19:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.