Leita í fréttum mbl.is

Kæri vinur

Bið þig að senda þetta áfram á þinn vinahóp og spyrja hvort þau vilji hafa áhrif á hvort börn verði fyrir kynferðislegu ofbeldi á Íslandi ??

Eftir fyrstu auglýsingaherferð Blátt áfram, kom til mín kona með tárin í augunum og sagðist vilja þakka fyrir að hafa séð auglýsinguna í sjónvarpinu. Sat og horfði á með 11 ára gamalli dóttur sinni sem brotnaði saman og sagði frá kynferðislegu ofbeldi.  

Önnur ung stúlka sagði frá og kom þá í ljós að sá maður var að beita margar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi og fékk hann dóm í kjölfarið.

Þetta hefur áhrif !

1 af hverjum 5 stúlkum og 1 af hverjum 10 drengjum verða fyrir kynferðislgu ofbeldi fyrir 18 ára aldur(Hrefna Ólafsdóttir 2002)

Styrktartónleikar verða haldnir á fimmtudaginn til að safna fyrir birtingu á nýrri auglýsingaherferð, átakið „Verndarar barna"

Blátt áfram þarf á þinni hjálp að halda, komdu og hlustaðu á eina af þínum uppáhaldshljómsveitum og styrktu gott málefni.

Styrktartónleikar 8 maí 2008
Stórtónleikar á NASA

Styrktar tónleikar á NASA 8 maí 2008.

12 af bestu hljómsveitum landsins koma fram

Húsið opnar klukkan 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00

Fram koma:

Nylon, Sálin hans Jóns míns, Ný Dönsk, Ljótu Hálfvitarnir,Buff, Á móti sól, Merzedes club, Rokksveit Rúnars Júlíussonar, Einar Ágúst, Brain Police, Sverrir Bergmann, Bermuda

Miðaverð er 2000 kr og rennur allur ágóðinn til Blátt áfram.

Safnað er fyrir nýrri auglýsingaherferð „Verndarar barna"

Miðasala á Pizzo Pizzería á Grensásveg !!

Blátt áfram þakkar fyrir þetta frábæra framtak!


Bestu kveðjur,
Sigríður Björnsdóttir

Blátt áfram!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Frábært framtak! Takk fyrir að vekja athygli á þessu.  Vona að allt gangi vel hjá þér og þínum, Sigrún mín. Afsakaðu hvað ég kommenta lítið hjá þér. Er bara í smá lægð þessa dagan.

Knús.

Hugarfluga, 8.5.2008 kl. 19:36

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Frábært framtak.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 11.5.2008 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband