13.3.2008 | 12:23
Ég er á lífi!!
Vona að enginn hafi efast um að ég myndi lifa þetta af...
Var reyndar ótrúlega lasin. Ældi og drullaði í gærmorgun og eiginlega ekki meir eftir það, en var gersamlega búin á því. Svaf meira og minna allan gærdag, druslaðist á árshátíðina í skólanum hjá krökkunum.
Þau stóðu sig eins og hetjur, Ólöf Ósk söng "Lífið er yndislegt" ásamt kórnum "sínum" og Jón Ingvi spilaði á blokkflautu ásamt bekknum "sínum".
Þegar heim kom skreið ég nú bara upp í, svaf eiginlega þangað Einar kom upp í, glápti þá á einn þátt í sjónvarpinu, með honum, og hélt svo áfram að sofa.
Tókst að fara með Jóhannes á leikskólann í morgun, og svo aftur heim að sofa..svaf til 10.25 en ég átti von á Dóru í heimsókn kl. 10.30.
Núna er Dóra farin...ég er búin að klára lopapeysuna...eða, búin að prjóna...á eftir að sauma og gera lista fyrir tölur...svo á ég eftir að ganga frá endunum.
Held ég skríði undir sæng í smá stund og safni kröftum. Er gersamlega búin á því.
Hef sama og ekkert borðað, er örugglega að skrælna líka...en það jafnar sig um leið og ég fer að koma einhverju að ráði niður. Appelsínusafinn með aldinkjötinu - sem ég venjulega ELSKA - komst ekki niður áðan :(
Jamm. Lasin.
En mjög hamingjusöm engu að síður, því LÍFIÐ ER YNDISLEGT!
Gaman samt að kúkafærslan mín fékk brósa til að kommenta Nú veit ég hvað þarf til
Ást til ykkar...
Og svo...
Einn brandari í lokin...
Bóndi nokkur var á krá og drakk mikið og virtist mjög dapur í bragði.
Kunningi hans spurði hvers vegna hann væri svo dapur og hann svaraði: ,,Suma hluti er ómögulegt að útskýra. Í morgun fór ég út í fjós að mjólka. Um leið og ég var búinn að fylla fötuna sparkaði kýrin fötuna um koll með vinstri fæti. Svo að ég batt fótinn við stólpann. Ég byrjaði aftur að mjólka og aftur felldi dýrið fötuna með hægri fæti. Þannig að ég batt hægri fótinn við stólpann. Um leið og ég fór að mjólka aftur felldi helvítið fötuna með halanum. Ég varð að taka af mér beltið til að binda upp halann."
"Og þegar ég var að binda upp halann, þá detta buxurnar niður um mig og í því kemur konan mín inn í fjósið. Trúðu mér það eru vissir hlutir sem ómögulegt er að útskýra."
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.12.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 178756
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Oj....... kjéllu hefur brguðið.
Vonandi ferðu að lagast mín kæra.
Linda litla, 13.3.2008 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.