Leita í fréttum mbl.is

Ja hérna hér...

...hugsið ykkur, af fara út á vinnumarkaðinn AFTUR 99 ára vegna þess að honum LEIDDIST og núna ætlar töffarinn að reyna við maraþon...101 árs að aldri!!

Geri aðrir betur!!!

--

Ég var að koma heim af kvöldvakt...er að bíða eftir mínum heittelskaða sem var líka á kvöldvakt...smávægileg mistök í skipulaginu ;) En Ólöf Ósk og tengdapabbi redduðu þessu með stæl! Ekki amalegt að eiga góða að, og mega duglega stelpuskottu!

Gleði og hamingja framundan...eins og alla daga reyndar.  Á morgun er gönguferð og kaffihúsheimsókn eftir vinnu...lokin á heilsuvikunni.  Ég hlakka til að fá niðurstöður úr blóðprufunni, og vona að sjálfsögðu að allt sé í gúddí með kólesterólið...það voru ansi margir of háir...og hver veit nema ég sé ein af þeim?! Vona ekki, en ef svo er þá er frábært að fá að vita það svo ég geti tekið ábyrgð á því.  

Jamm. Lífið er fullt af tækifærum.  

Megi Guð og englarnir vaka yfir okkur öllum í nótt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góða helgi elskurnar ;)

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 07:07

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég segi bara góðan daginn

Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.3.2008 kl. 08:34

3 Smámynd: Linda litla

101 árs og ætlar að reyna maraþon..... kommon, ég er 36 ára og ég nenni ekki einu sinni að skokka út í búð.

Góða helgi.

Linda litla, 7.3.2008 kl. 12:10

4 Smámynd: Hugarfluga

Hef ég sagt þér hvað mér finnst þú ljúf og góð manneskja, Sigrún mín? Er svo sátt við fólk eins og þig sem kann að meta núið og lífið eins og það er og þakkar fyrir það.

Hugarfluga, 7.3.2008 kl. 19:10

5 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk darlingurnar mínar.

Hugarflugan mín, sömuleiðis. Hef oft hugsað að ég held að við gætum náð ansi vel saman in real life líka ;) 

SigrúnSveitó, 7.3.2008 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband