31.1.2008 | 12:57
Svefngengillinn bloggar!
Shit hvað ég get verið mikil svefnpurka!! Reyndar fór ég á fætur með krökkunum í morgun...og fannst það svo sem ekki mjög gaman. Gelgjuskottið okkar var í vægast sagt leiðinlegu skapi og þegar hún er í þeim gírnum þá má Jón Ingvi ekki anda nálægt henni. Svo hann var reiður og sár, henti skónum hennar út og hún alveg óð, eins og naut í flagi! Hún var svo örg að hún meira að segja gleymdi að spá í nesti...svo hún kom heim núna í hádeginu og fékk dýrindis steiktan fisk...og var alsæl! Gott að morgunpirringurinn endist ekki allan daginn!!
Nema hvað. Jón Ingvi náði sér líka niður og fór í skólann.
Jóhannes fékk að leggjast yfir eina mynd og ég skreið undir heita sængina hjá mínum heittelskaða og þegar hann svo fór á fætur til að fara upp í hús...já, þá lá ég áfram og STEINrotaðist! Og ætlaði aldrei að geta vaknað. Mikið er óþægilegt, finnst mér, að sofna svona aftur. Gott að sofa reyndar, en alveg skelfilega erfitt að vakna. Og ég er einhvernveginn asnaleg í hausnum lengi á eftir.
Samt læt ég mig hafa það og legg mig...læri seint af reynslunni...!
Annars er kjarabarátta víst mál málanna í dag. Sko, ég vil alveg fá betri laun þó ég tilheyri ekki þeim hópi sem sé að farast úr óánægju. Kannski vegna þess að ég lifði svo mörg ár á fæðingarorlofi eða SU (danski námsstyrkurinn) og svo auðvitað innkomu Einars. Svo við erum að fá miklu meira í lófann núna en mörg ár á undan.
Samt, ég verð að standa með stallsystrum mínum og mæta á fund á eftir...vona að það verði þokkalega skemmtilegt...annars lauma ég mér út...ég þarf hvort eð er að fara fyrr til að sækja Jóhannes í leikskólann...!!
Svo er þessi powertími líka í dag...ojojoj, ég verð sko orðin bikinífær í sumar með þessu áframhaldi!! Það liggur samt við að ég hálf kvíði þessum tíma...er með harðsperrur í maganum eftir tímana í gær og fyrradag...og þá var það bara ég sjálf sem píndi mig...en í dag verða tvær kvennsur með pískinn á lofti...!!
Jamm. Ekki meir í fréttum í dag. Best að prjóna smá...er alveg að verða búin með gatamynsturbekkinn á kjólnum...þá kemur smá rósamynstur og svo...svart svo langt sem augað eigir!!!
Knússssss.........
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 178743
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
það er svo notalegt að skríða upp í aftur og kúra
vona að fundurinn verrði ekki drepleiðinlegur hehehehehe
Guðrún Jóhannesdóttir, 31.1.2008 kl. 13:11
Já það er sko notó að skríða upp í aftur...ég bara sofna svo þungt...svo það er alls ekki notó að skreiðlast fram úr aftur...
SigrúnSveitó, 31.1.2008 kl. 13:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.