29.1.2008 | 12:30
Sjúkdómafræði!
Sit hérna heima og les í sjúkdómafræðinni...smá upprifjun í gangi! Bókin er á norsku, yndislegt tungumál!
Ég er að lesa um hjartabilun og þar stendur m.a. undir sjúkdómsgreiningu;
"...og om beina ofte hovner opp om kvelden..."
---
Nóg um það. Ég er að reyna að manna mig upp í að fara að æfa. Er ekki að nenna en er þó komin í gallann!!! Ætli ég fari ekki kl 13, þegar hádegistörnin er búin!!
Ég var á kvöldvakt i gær svo ég slapp við ÆLU hérna heima...Jóhannes greyið ældi víst svona hressilega. Í sófann og á gólfið og svo í klósettið líka. Molinn litli. Svo leið honum vel á eftir og síðan ekki söguna meir. Fór hress og glaður í leikskólann í morgun, bað ekki einu sinni um að vera í fríi...sagði kátur í bragði; "Mamma, það er SVO gaman í leikskólanum"!!!
Annars er stóri strákurinn minn heima, hann kvartaði yfir því í morgun að honum væri illt í maganum og hefði það eins og hann þyrfti að æla...(smá dönskuslettur hér á bæ enn..."har det som om jeg skal kaste op"). Svo sagði hann með mikilli dramatík og greip um hálsinn á sér; "svo er ég svo bólginn hér". Og tárin láku.
Þar sem Jóhannes kastaði upp í gær þorði ég ekki öðru en trúa Jóni Ingva... Hann fór allra sinna ferða fram undir hádegið með ælufötuna í hendinni...en núna er hann búinn að sleppa henni og segir að sér sé batnað! Gott mál.
--
Annað var það víst ekki í dag...best að fara að prjóna þar til kl. 13....
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
gott að drengjunum þínum er batnað, njóttu dagsins
Guðrún Jóhannesdóttir, 29.1.2008 kl. 13:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.