Leita í fréttum mbl.is

Hjálpum þeim...og fleira

Ég var að leita að myndbandinu "Hjálpum þeim" á netinu, fann útgáfu frá 2005 á YouTube...en langar geðveikt að sjá þessa upprunalegu.  Man óljóst eftir henni, og mér finnst 1985-útgáfan vera THE útgáfa...að öllum ólöstuðum!

Haldið þið að sú útgáfa finnist á netinu einhversstaðar????

---

Jæja, þá er Cille farin Crying Við náðum að fara með hana í sund, leyfa henni að upplifa að fara í sund úti í frosti!  Henni fannst það frekar sérstakt, og naut þess í botn.  Reyndar var planið að fara með hana einhvern seinnipartinn, í myrkri líka, en það náðist ekki.  Viðraði ekki til sundferða þá daga sem ég hefði komist með þeim.  

Nú er hún nýbúin að hringja, lent í Köben og komin í öruggan faðm foreldranna.  Nokkrir mánuðir í að við hittum þessa yndislegu stelpu aftur.  

---

Er svona að spá hvort ég eigi að æsa mig yfir fíflunum í umferðinni...jú, ég ætla að láta það vaða...ótrúlegt hvað fólki liggur lífið á.  Upplifði tvisvar framúrakstur í dag sem mér þótti ansi hæpinn...og alveg magnað hvað fólk (umferðafíflin) hugsar ÉG, það er ekki mikil  VIÐ-hugsun í gangi.  Neibb, ÉG er að flýta mér...skítt með hvort ég stúta nokkrum á leiðinni!

AAAARRRGGGGGGGGGG!!!!!!!!!!!

---

En núna ætla ég, í einskærri gleði og hamingju, að lokka minn heittelskaða í kúr fyrir framan imbann!!  

Sendi kærleikshugsanir til ykkar allra sem fylgist með bullinu í mér Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er að kúra með mínum  úúúú   Love 

Ásdís Sigurðardóttir, 2.1.2008 kl. 22:32

2 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Hei, Vááá! Það er frábært að það sé búið að gera endurútgafu af þessu frábæra lagi. Gamla útgáfan var/er mjög góð en þessi er heldur ekki nein smásmíði. Vonandi hefur safnast vel inn vegna endurútgáfunnar.

Gangið á Guðs vegum. 

Gunnar Páll Gunnarsson, 3.1.2008 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband