Leita í fréttum mbl.is

Helló aftur!!

Sjúklingurinn okkar vildi fá mig heim fljótt þarna áðan, svo ég naglhreinsaði bara fáar spítur og dreif mig svo heim.  Sjúklingurinn er Jón Ingvi en hann var með smá hitavellu í gærkvöldi og ældi svo hressilega líka...meðan ég var í burtu...svo ég slapp við að skúra!  

Reyndar er hann sprækur í dag og fer í skólann á morgun.  Svo sprækur núna að honum HUNDleiðist!!  Það er alltaf batamerki LoL 

Gleymdi að segja ykkur að ég er að fara að gera svakaskemmtilegt á föstudaginn...ja, annað kvöld!  Vinkona mín hérna á Skaganum ætlar að halda konukvöld, er búin að bjóða nokkrum kerlum í mat...og svo verður SingStar eða eitthvað skemmtilegt.  Svo ég er nú að stíga inn í ótta minn, því ég er alltaf hrædd í kvennahóp.  Hefur alltaf liðið betur innan um marga karla en margar konur.  Gömul minnimáttarkennd, brestur sem ég vil gjarnan sleppa tökunum á, svo þess vegna sagði ég JÁ TAKK! og bauðst til að búa til desert...sem er pínu eigingirni líka...þar sem ég borða ekki sykur Wink

Að lokum langar mig að segja þetta;

I believe...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er nú eins og þú, vil alltaf hafa karlmenn með, er ekki enn búin að læra á kvennakvöld. En góða skemmtun.    

Ásdís Sigurðardóttir, 11.10.2007 kl. 19:31

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

frábært, það verður örugglega mjög gaman hjá ykkur :)

Guðrún Jóhannesdóttir, 11.10.2007 kl. 22:54

3 identicon

Þú ert svo dugleg að hella þér út í hlutina og takast á við óttann .. dáist að þér fyrir það!! :)  Kvenna-boðið verður örugglega mjög skemmtilegt.  Góða helgi!! ;-)    ps.  ekki gleyma að kíkja á síðuna okkar .. news! :-D 

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 08:14

4 Smámynd: Tanni Ofurbloggari

lofa og lofa hmm

Tanni Ofurbloggari, 12.10.2007 kl. 09:00

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

skemmtu þér vel

Hrönn Sigurðardóttir, 12.10.2007 kl. 19:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband