14.9.2007 | 22:48
Mér líður nokkuð vel...STÍGVÉL!!
Fékk heimsókn í kvöld. Skemmtileg stelpa. Hef hitt hana nokkrum sinnum áður og einu sinni spjallað við hana á kaffihúsinu. Gaman. Alltaf gaman að kynnast nýju fólki. Fólki sem talar "sama tungumál".
---
Í gær þegar ég var að fara heim úr vinnunni var bíllinn rafmagnslaus fyrir utan...ég hafði gleymt að slökkva á ljósunum...arg...ég er sko ekki vön að þurfa að spá í ljósin á græna bílnum...en þessi rauði...skjóðurinn... Jæja, ég var svo lánsöm að ein sem var á næturvakt bauð mér að taka bara sinn bíl þar sem ég var að koma aftur í morgun. Yndislegt.
Ég flýtti mér svo að hringja í Einar til að biðja hann að redda bílnum þegar hann kæmi heim af næturvakt eða þegar hann færi á kvöldvakt... "Afhverju kveiktirðu ljósin, það þarf ekki!, sagði hann. En ég vissi betur!!! Hef sko oft startað bílnum í myrkri og engin ljós kviknað...og hana nú!!! "Ástin mín, þau kvikna þegar þú stígur á bremsuna", sagði hann þá...
OK, og HVERNIG átti ég að vita það???? (Þið sem munið eftir þessu með krúskontrólið...þið þekkið mig)
---
Læt þetta gott heita í kvöld. Er búin að baka heilan helling í kvöld líka. Það verður VEISLA á morgun
Gangið á vegum Æðri Máttar.
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
híhíhíhí nú flissaði ég. Kvikna ljósin þegar stigið er á bremsuna? AF hverju vissirðu þetta ekki?
tíhíhíhíhíhíh
Hrönn Sigurðardóttir, 15.9.2007 kl. 07:55
Kom on á maður bara að vita svona, bílar eru ekki almennt með þeim fídusum að ljósin kvikni þegar stigið er á bremsuna, ha, ha, ágætt að vita þetta á gamals aldri. Knús og kveðjur á skagann. og mundi að stíga oftar á bremsuna
Ásdís Sigurðardóttir, 15.9.2007 kl. 21:13
Hvaða ljós kvikna ekki fyrr en maður stígur á bremsuna? Hvurs lags er þetta eiginlega? Segðu honum að þú komist ekki í stuð fyrr en hann setji þvottaklemmur á eyrun á þér! jahérnahér.
Hugarfluga, 15.9.2007 kl. 23:46
Ég hélt nú að það væru bara bremsuljósin sem kviknuðu ef maður stígur á bremsuna, enda veit ég ekki mjög mikið um bíla, ég kann að keyra bíla svo kann ég líka að þvo þá og ryksuga, og jú ég kann líka að setja bensín á þá en þá held ég að það sé upptalið. Ef bílinn minn bilar kýs ég að láta aðra um að sansa hann til.
Knús til þín.
hofy sig, 16.9.2007 kl. 02:05
Ég hef ALDREI fyrr heyrt að ljósin kvikni þegar stigið er á bremsuna! Jú, bremsuljósin...en ekki AÐAL ljósin!! En ég er alltaf að læra eitthvað nýtt
SigrúnSveitó, 16.9.2007 kl. 10:48
Kviknar ekki bara á bremsuljósunum ?
Halldór Sigurðsson, 16.9.2007 kl. 12:31
neibb, ekki bara!! ...er mér sagt...ég trúi auðvitað Einari ;)
SigrúnSveitó, 16.9.2007 kl. 12:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.