Leita í fréttum mbl.is

Eilífðarhamingja

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að
halda  maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.

En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og
 um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg
efni.

Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá
 fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft
   niður undir hné.

En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu
 dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur
betri   dagur.

Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við
 þessum þremur hlutum


1. Rigningardegi 2. Týndum farangri 3. Flæktu jólatrésskrauti

Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar,
 komum við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.

Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það
sama  og að skapa sér líf.

Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.

Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með
 hornabolta-hanska á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa
   boltann til baka.

Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég
 yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.

Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir
 þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.

Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir
 ekki hvernig þú lætur því líða.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Frábært! Svo rétt þetta með hvernig maður bregst við rigningardegi, týndum farangri eða flæktu jólatrésskrauti........

Takk ljúfust

Hrönn Sigurðardóttir, 7.8.2007 kl. 22:44

2 Smámynd: Dabban

takk fyrir þetta frænka. margt rétt og satt þarna. Stundum þarf maður að lesa eitthvað svona til að minna mann á það sem skiptir máli í raun og veru

knús

Dabban, 8.8.2007 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband