22.7.2007 | 09:51
Leiðindakvöldið okkar
Við byrjuðum leiðindakvöldið á að borða Taco, sem okkur öllum finnst gott. Eitt af því góða við leiðindakvöldin er að það er sameiginlegur frágangur eftir matinn, enginn fer í fýlu yfir að 'þurfa' að hjálpa til (spurning um að hafa leiðindakvöld á hverju kvöldi...).
Eftir það klæddum við okkur og fórum út. Röltum á kaffihúsið og fengum okkur kaffi...eða við 'gömlu' fengum okkur kaffi en krakkarnir fengu gos. Sátum þar og áttum góða stund, ég sagði þeim sögur af Jóni Ingva og því sem hann sá (en aðrir ekki) þegar hann var yngri. Jón Ingvi átti erfitt með að drekka maltið sitt, því hann hló svo mikið.
Eftir kaffihússtoppið rötlum við áfram, niður á Akratorg þar sem krakkarnir príluðu upp á STÓRA steininn sem sjómaðurinn stendur á. Sumir eru með þyngri rass en aðrir...svo þetta gekk misvel, en allir komust upp að lokum.
Svo röltum við niður að sjó, niður á gömlu Akraborgarbryggjuna og svo meðfram sjónum upp á Langasand. Þar áttum við góða stund, áður en við röltum heim og flatmöguðum í stofunni.
Þess má geta að eftir að hafa þambað malt og appelsín á kaffihúsinu þá þurftu drengirnir að gera nokkur pissustopp á leiðinni...
Á leiðindakvöldi má ekki reka börn í svefn...svo foreldrarnir voru nær dauða en lífi af þreytu...en þetta fór allt vel. Strákarnir hentust í sturtu seint og síðarmeir og svo í bælið, með bækur, blöð og liti. Það var mikið spjallað, en allt í einu var allt HLJÓTT!!! Og þeir steinsofnaðir...Einar líka...og ég alveg að leka út af, svo ég fór og lét Ólöfu Ósk vita (sem er komin á kaf í unglingabækurnar mínar...þið vitið; 'Viltu byrja með mér' eftir Andrés Indriðason...og allt það). Hún sem sagt vann vökukeppnina...
Og nú er minn heittelskaði auðvitað farinn upp í lóð/hús. Hann er að kafna úr gleði og hamingju, kubbar og kubbar!!
Við hin vitum ekki alveg hvað við eigum að bralla í dag. Vildi að Norðfjörður væri aðeins nær...miklu nær...þá gæti ég kíkt í kaffi til mömmu eða systkina minna!! En það er nú bara 1½ vika í það!!!
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 178853
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Greinilega frábært kvöld!! Gott að ykkur líður vel saman.
knús
Hrönn Sigurðardóttir, 22.7.2007 kl. 11:06
Þau eru æði, þessi leiðindakvöld. Mæli eindregið með þeim! Og já, okkur líður vel saman, og það er svo yndislegt.
SigrúnSveitó, 22.7.2007 kl. 13:05
dásamlegt kvöld !
Alheimsljós til þín frá mér
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 22.7.2007 kl. 13:11
Ó mæ god, hvað það hefur verið gaman. Reyndar var óvenju fjölmennt hjá okkur. Yngsti sonur (19) var í heimsókn og gladdi foreldra sína með nærveru sinni. Hann er á snúrunni bæði eiturlyf og vín og gengur vel, það er yndislegt að hafa hann. Kubbakveðjur á Einar
Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2007 kl. 14:02
Þetta leiðindakvöld ykkar er svo mikil snilld! Og nafngiftin líka! hehe
Hugarfluga, 22.7.2007 kl. 19:39
Þið eruð svo mikil krútt-fjölskylda :-) Dásamlegt kvöld hjá ykkur :))
ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.