Leita í fréttum mbl.is

að gefast upp...

...fengum bakslag í gær...höfðum verið á villigötum með verkefnið...leiðbeinandinn segir samt að við höfum ekki sóað tímanum...en við upplifum það samt þannig...akkúrat núna sé ég ekki fram á að þetta verði nokkurntímann búið...

...held ég ætti að skella mér á hnén og spjalla við ÆM...og svo í hugleiðslu og sjá hvað ÆM hefur við mig að segja...

...jamm, ætla að gera það snöggvast... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þetta klárast, elskan mín. Lenti í svipuðu í kúrsinum"Lærðu að vera stjórnmálafræðingur á sex vikum" (eða næstum því). Við áttum að skrifa ritgerð um "hugmynd og allt ferlið þar til hún verður að lögum". Helmingi tímans eyddi ég í pælingar og  að safna að mér vitneskju um mál ... sem var ekki orðið að lögum. Fattaði þetta á síðustu stundu og skrifaði um nýlegt (þá) mál, staðfesta samvist, réðst í verkefnið á tvöföldum hraða ... og fékk 8,5 ...  var næsthæst.  Þetta  grobb var í boði Guðríðar ... en í alvöru, þarna munaði litlu, ég hefði fallið ef ég hefði haldið áfram við þetta gamla ... og enginn til að segja mér að ég var að ruglast. Þú hefur það fram yfir ... Láttu mig vita ef ég get eitthvða hjálpað þér, verst hvað ég kann lítið í dönsku ... en mamma er hjúkka!!! GANGI ÞÉR FRÁBÆRLEGA, ÆÐISLEGA VEL!!!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.5.2007 kl. 11:05

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk fyrir það

Ég er komin upp á hestinn aftur. Búin að fara á hnén, spjalla við ÆM og hlusta á hann líka Það virkar alltaf.

Svo er ég búin að tala við Annemarie, við erum búnar að skrifa smá og senda til Lis (leiðbeinandinn) og henni leist vel á...og vill meina að við séum á réttri leið.  Hún ætlar líka að tala við okkur aftur á eftir, svo þetta virðist vera á skriði núna.  

Þetta hefst.  Eins og Lis sagði í gær; "Þetta er strembinn tími", það upplifa það sennilega allir sem skrifa svona verkefni...

Svo ekkert vol og víl, ég sef bara þegar þetta verður búið!!! Þá verður sko SOFIÐ!!!!! HAHAHA!!!

Jæja, best að halda áfram...*smútzzz*

SigrúnSveitó, 23.5.2007 kl. 11:21

3 identicon

En leiðinlegt, ÆM hefur örugglega lausn á þessu. Þið græið þetta, hef alla trú á ykkur, en skil að það sé erfitt að sjá fyrir endann þegar svona kemur upp á.

koss, knús, ljós og poj poj 

jóna björg (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 11:24

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Já, ÆM hefur pottþétt lausn á þessu eins og öllu öðru.  Ég þarf bara að sleppa tökunum og held mér hafi tekist það áðan.  Ég geri mitt besta og betur get ég ekki gert.

Takk fyrir koss, knús og ljós, og poj poj´ið

SigrúnSveitó, 23.5.2007 kl. 11:29

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú getur þetta! Ég veit það!!

Hrönn Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 12:14

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk

SigrúnSveitó, 23.5.2007 kl. 12:20

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þú ert örugglega komin upp á hnén aftur og komin í gang.

knús og

Ljós til þín frá mér

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband