13.4.2007 | 21:28
glettni á föstudagskveldi
Ný Solla Stirða!!! Einn alveg að fýla sig í tætlur sem Solla...
Mikil gleði hér á bæ. Ólöf Ósk er með vinkonu sína hjá sér, sem ætlar að gista. Þær eru búnar að vera í singstar meira og minna í kvöld. Rosa skemmtilegur leikur!! Ég get alveg gleymt tímanum þegar ég byrja...
En þessi vinkona er sko næstumþvífrænka, eins og þær kalla sig. Mamma hennar er nobbari og er víst eitthvað skild stjúpa mínum. Veit ekki meir um þann skyldleika. En vinkonur eru þær, svo mikið er víst
Jóhannesi tókst að sofna án vandræða í kvöld. Við erum búin að vera í keppni í þrjósku því hann vill bara sofa hjá mér...og ég vil að hann sofi í sínu rúmi!! Hann má gjarnan koma upp í ef hann vaknar, en hann á að sofna í sínu rúmi. Hann kemur með allskonar skemmtilegar útskýringar á því hvers vegna hann eigi að sofna í mínu rúmi. Það eru úlfar, hann vill brjóst (já, brjóst!!!), hann bara getur ALLS EKKI sofnað (hrýtur svo 2 mín. síðar!!) og svona er hægt að telja lengi. En í kvöld gekk þetta sem sagt vel. Ég mátti reyndar ekki kalla hann Jóhannes, því hann var Loki *sloppaður* (Loki þegar hann er sloppinn úr hellinum þar sem hann var hlekkjaður eftir að hann drap Baldur...já, Jul í Valhal...).
Ég er búin að baka 3 skúffukökur í kvöld. Eigum von á gestum á morgun...vitum ekki hversu mörgum...en til að Einar fái nú örugglega nóg... Ekki vil ég að hann svelti, þessi elska...!!
Og til að ég svelti ekki þá ætla ég í fyrramálið (þegar ég er búin að fara út í búð...) að gera Sollu konfektkúlur og svo skella í eina köku sem ég ætla að taka með á sunnudaginn til Elínar...lofaði að taka sykurlausu kökuna með mér sjálf og geri það með ánægju. Nú er ég sykurlaus og hamingjusöm, það er ÞÖGN í hausnum á mér og I LOVE IT!!!
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
fagra sveitamær, þetta hljómar svo yndislega, svæfa börnin, leika sér baka súkkulaðiköku. love it.
Ljós til þín í nóttina
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.4.2007 kl. 22:31
Æ sendur mér köku, ég nenni ekki að baka ég á eina Sollu, hún er kölluð Solla klára.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.4.2007 kl. 22:59
Hæ elskan!
Hvað heitir Nobbarinn mamma hennar næstumþvífrænku? Bara forvitin og hverra manna er hún? (Ég veit, ég er frekar mikil hruma núna en ef maður vill vita eitthvað, þá verður maður að spyrja).
Hlakka til að heyra í þér á þriðjudaginn eftir fyrstu unaðslegu nóttina í nýja rúminu .
Ástarkveðja frá mömmu.
Magnea Móberg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 01:30
Steina: Þetta ER yndislegt líf. Yndislegir krakkaormar, yndislegur maður og svo er ég á því (í dag) að ég sé bara ansi yndisleg sjálf - er þetta bara ekki frábært?!
Ásdís, já, þú meinar það. Annars fer ég á Selfoss á morgun með eina köku...er að fara í afmæli hjá systurdóttir minni sem þar býr
Mamma: Ég viss um að þú vissir hverja ég væri að tala um. Siggerður, systir Bóa er mamma hennar
Ástarkveðja til baka.
SigrúnSveitó, 14.4.2007 kl. 09:06
Um daginn varstu að tala um gamla vinkonu, rakst óvart á þetta blog http://thelmaasdisar.blog.is/blog/thelmaasdisar/ veit ekki hvort þetta er retta manneskjan eða hvort þú veist af þessarri síðu en ákvað að senda þér þetta
Kveðja úr firðinum fagra
Brynja
Brynja Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 13:43
Jú, Brynja þetta er sú hin sama. Var einmitt búin að finna hana þarna. En kærar þakkir fyrir ábendinguna.
Ljós til þín...
SigrúnSveitó, 14.4.2007 kl. 21:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.