21.3.2007 | 13:01
Aum í bakinu...
...ég held ég sé búin að halda of mikið á Jóhannesi í Danmerkurferðinni og svo það að sofa í heilan mánuð á 90 cm með lítinn orm í rúminu hjá mér sé ástæðan fyrir bakverkjum. Íhuga að fara að synda á morgnana þegar ég er búin að skila Jóhannesi í leikskólann...það er víst gott fyrir vöðvabólgu...bara ekki bringusund...
...það hins vegar veldur mér smá hugarangri þar sem ég hef aldrei lært almennilega að synda skriðsund...eða mér finnst það ekki. Ætti kannski að prófa. Ég hef alltaf verið svo upptekin og hrædd við álit annara að ég hef aldrei þorað að synda. Skrítin skrúfa ég... Eins og fólk sé eitthvað að glápa á sundtæknina hjá mér...og ef það gerir það, hvað með það þá?
Hef stundum íhugað að skrá mig á sundnámskeið fyrir fullorðna, en kannski þarf ég þess ekkert, kannski þarf ég bara að demba mér í sund og SYNDA!!! Hluti af þessu er líka vatnshræðslan mín. Lenti nefninlega í "voldsommri" kaffæringu áður en ég var orðin synd og var hræðilega hrædd. Svo held ég bara svei mér þá að ég hafi drukknað í fyrra lífi!
Jæja, nóg bull í bili og nógu löng pása...ætla að halda áfram að LESA!!! Um alkohólsima...
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
burt séð frá spéhræðslu eða ekki, held að það sé bara sniðugt að fara á sundnámskeið og rifja upp sundstökin. Er einmitt sjálf í brasi með skriðsundið, ég geri það eitthvað vitlaust svo það verður extra erfitt fyrir vikið (NB. svindla sko ekki með neinar froskalappir eða svoleiðis), nema ég sé í svona hrikalega lélegu formi, sem gæti reynar líka verið.
þannig að ef það er boðið upp á fullorðinsnámskeið á skaganum myndi ég drífa mig.. ef ég væri þú...
Salný (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 14:38
Takk fyrir þetta
SigrúnSveitó, 21.3.2007 kl. 14:41
Hva, ég gat ekki betur skilið á sundpæjunum í Vesturbæjarlauginni en að það væri mjög kúl að fara á sundnámskeið. Þar eru reyndar sérstök skriðsundnámskeið og ég veit ekki betur en froskalappirnar séu notaðar þar í kennslunni svo að fólk læri að hreifa fæturna á réttan hátt. Froskalappirnar eru fínar ef maður vill þjálfa vöðva í fótunum sérstaklega en ef maður vill reyna meira á hendurnar finnst mér betra að sleppa þeim. Sjálf gerði ég þetta bara allt í bland og er nú að hugsa um að fara að prófa köldu sundlaugina hérna í nágrenninu því ég er farin að sakna sundsins alveg óskaplega. Ég mæli a.m.k. með sundinu, góð hreifing og svo hittir maður alltaf e-ð skemmtilegt fólk í leiðinni.
Jóhanna (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 15:19
ok, gott að vita. Þannig að ég er ekkert mjög "halló" ef ég skelli mér á sundnámskeið!!
Er nánast farin að örvænta með hlaup og þetta blessaða hné mitt...
SigrúnSveitó, 21.3.2007 kl. 15:46
Mér finnst spölurinn úr búningsklefanum og út í laug erfiðastur. Svo þegar ég er komin ofan í laugina sprikla ég og baða út öllum öngum og syndi með mínum stíl. Fæ stundum augngotur frá sundlaugarverðinum ... hann er ekki alveg viss hvort ég sé að drukkna eða bara að snúa við á miðri leið ... but who cares. Sund er gott fyrir kroppinn!
Hugarfluga, 21.3.2007 kl. 19:17
hahaha, ég sé þetta fyrir mér, Hugarfluga. Ég held ég ætti að taka þig til fyrirmyndar
SigrúnSveitó, 21.3.2007 kl. 19:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.