Leita í fréttum mbl.is

halló kalló bimbó...

...eða hvað?  Halló Kalli og Bimbó?

Jamm, við lögðum upp í langferð í dag.  20 mín til Hillerød í bíl, 30 mínútur í lest til Svanemøllen og svo 30 mín í lest til Herlev.  Þar sótti Jóna okkur á lestarstöðina og við áttum yndislega klukkutíma með henni og Sindra.  Óvænt ánægja að Sindri var heima líka.  Þetta var bara sjúklega gaman.  Bara frábært að *eiga* svona yndislega og skemmtilega vini.  I LOVE IT!!!

Annars er ég bara þreytt.  Þó það sé alveg frábært að hitta alla þá er þetta erfitt.  Aldrei slappa af...bara "fise rundt"... LoL Þetta er eins og þegar við fórum í Íslandsferðir meðan við bjuggum hér, endalausar heimsóknir sem eru bara frábærar, en svo er voða gott að koma heim og slappa af eftir á!!  Dejligt.  

Á morgun kemur Jón Ingvi.  Jiiiii hvað ég hlakka mikið til.  Jóhannes hlakkar líka til en hann er samt ekki alveg 100% sáttur...hann veit að þá þarf hann að fara að deila mömmu "sinni"...og það er ekki það sem Jóhannes er bestur í...!!  En það reddast.  Það verður svo yndislegt að fá stóra orminn út til okkar.  

Best að fara að fá mér kaffi...kannski vakna ég við það...!! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

júbb, þetta er eldri sonur minn.  Hann er 6½ árs

SigrúnSveitó, 9.3.2007 kl. 19:15

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Já, söknuðurinn er orðinn ansi mikill.  Svo eru 8 dagar í heimferð, tíminn flýgur...

SigrúnSveitó, 10.3.2007 kl. 07:36

3 identicon

Takk fyrir í gær það var frábært að fá ykkur mæðgin. Hlakka til að hitta ykkur næst.

Jóna (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband