Leita í fréttum mbl.is

Jamm og já

Kominn föstudagur...

Þar sem það var greinilega enginn áhugi hjá lesendum mínum að sjá FLOTTU teikningarnar að framtíðarheimili okkar þá ætla ég ekki að setja þær hér inn!!  En ef það skyldi einhver villast hérna inn og hafa brennandi áhuga þá er hægt að skoða teikningar og svo fylgjast með byggingunni þegar hún fer af stað HÉRNA.  Mér finnst þetta ægilega spennandi allt Wink

Við vöknuðum í rólegheitum kl rúmlega 8 í morgun.  Ég vaknaði við blíðlega stroku frá syni mínum sem horfði á mig og sagði með blíðum rómi; "Mamma, það er ekki nótt lengur"!!  Yndislegt.  

Jóhannes vill ekki tala við pabba sinn, segist vera í fýlu út í hann Crying Við foreldrarnir teljum það vera vegna þess að "pabbi er ekki hérna!!"!!!  En það hlýtur að líða hjá.  Það verður yndislegt að koma aftur heim, fyrir okkur bæði, það er á hreinu.  

Ude er godt, hjemme er BEDST!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ krúttan mín...Ég ætla að sýna Brynjari teikningarnar í kvöld...við erum spennt fyrir ykkar hönd, ekki samt að þetta byggingartímabil sé neitt æðislegt, kallinn aldrei heima og svol.vesen, en hvað leggur maður nú ekki á sig :)

Síðan pikkum við Ólöfu Ósk upp í bænum í dag og það er eitt og annað á döfinni ;) Okkur hlakkar mikið til að eyða helgini saman...Í kvöld verður stelpukvöld þar sem Brynjar verður vant við látinn!!

 Vonandi hafið þið það áfram gott, það verða bara enn skemtilegri endurfundir þegar þú kemur loks til baka..

knús til ykkar

Elín Eir (IP-tala skráð) 2.3.2007 kl. 08:55

2 Smámynd: SigrúnSveitó

hehe, já þetta verður spennandi en erfitt.  Við erum svo sem vön að sjá Einar lítið...en það er ekki gaman.  En þetta verður spennandi.  

Vona að helgin verði frábær hjá ykkur.  Góða skemmtun á stelpukvöldi

Hlakka til að sjá ykkur. Knús... 

SigrúnSveitó, 2.3.2007 kl. 09:15

3 identicon

Vá Sigrún, þetta hús verður æðislegt!!! Það eina sem ég skil ekki í svona er hvernig hægt er að hafa þolinmæði í að gera þetta allt sjálfur og geta beðið. Kveðja frá næstu eyju.

Jóhanna (IP-tala skráð) 2.3.2007 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband