12.4.2007 | 22:53
Ótrúlega gaman...
...að vera til. Skrapp á kaffihús með leynivinunum. Alveg algert æði, næring fyrir sálina. Svo gaman að spjalla. Ji minn eini hvað ég er óendanlega þakklát fyrir lífið. Fyrir manninn minn og börnin okkar, fyrir vinina, fyrir fjölskylduna - líffræðilegu og andlegu. Þakklát fyrir að sitja hér og geta skrifað á bloggið mitt, þakklát fyrir alla bloggvinina. Þakklát fyrir að við eigum mat á borðið og þak yfir höfuðið. Og bíl til að komast á milli staða. Þakklát fyrir að börnin okkar, og við, erum heilbrigð og hraust. Þakklát fyrir að sólin skín á okkur alla daga, beint eða óbeint. Þakklát fyrir að hafa fengið styrk og tækifæri til að mennta mig, þakklát fyrir að vera komin með vinnu þegar ég útskrifast. Ég gæti haldið endalaust áfram.
Að lokum þetta:
Gefðu Guði þig á vald samkvæmt skilningi þínum á honum. Viðurkenndu bresti þína fyrir honum og félögum þínum. Hreinsaðu til í rústum fortíðarinnar. Gefðu örlátlega af því sem þér hlotnast og slástu í för með okkur. Við verðum með þér í andanum og þú rekst örugglega á eitthvert okkar þar sem þú getar þig áfram á vegi gæfu og gengis.
Guð blessi þig og varðveiti - þangað til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.4.2007 | 11:43
Lærð hegðun...
...eða hvað heitir það aftur þegar það eru tengsl milli hegðunar og refsingar...og allar þessar tilraunir með t.d. apa, þar sem apinn fær mat hjá hörðu, köldu víra-"mömmu" og svo getur kúrt hjá mjúku, hlýju "mömmu". Og þar sem dýrið fær rafmagn við að gera eitthvað...eða umbun fyrir eitthvað annað.
Spurning hvort það virki á mig líka!!!, eða hvort ég sé vonlaust *keis*...
Trúi reyndar á mátt bænar og hugleiðslu í flestum málum, svo ætli það virki ekki betur á sykurfíknina en rafstuð?!!!
Skrapp í klippingu áðan. Fór síðast í klippingu í júní á síðasta ári...svo hárið á mér var orðið þannig að ég gat varla greitt það...þvilíkt slitnir endar...svo það var tekinn hellingur af því!
Og ég sé VEL á þessum myndum hvað ég fitnaði á þessu tæpl. 3ja mánaða sykursukki mínu...nú er það sko búið...amk. í dag...einn dag í einu og ekkert bull!!
Fór með Jón Ingva til augnlæknis í morgun, það er ekkert að sjóninni í honum, örlítið fjarsýnn en innan eðlilegra marka og örlítil sjónskekkja en einnig innan eðlilegra marka. Svo hann sér eins og örn, sagði hún. Þannig að nú getur Ólöf Ósk pakkað saman öllum staðhæfingum um að drengurinn sé blindur! Ég var að segja við Jón Ingva að ef hann t.d. horfi bara aðeins til hliðar við það sem Ólöf Ósk (eða einhver annar bendir á) þá sé mjög eðlilegt að hann sjái það ekki. Nú hefur hann orð sérfræðings um að hann sér VEL!! Reyndar sér hann ekki sérlega vel akkúrat núna...því hann fékk einhverja dropa í augun hjá augnlækninum sem setja allt úr fókus í nokkra tíma. Svo hann græddi og fékk að koma heim aftur í stað þess að fara í skólann! Núna situr hann inni í herbergi og horfir á "Min søsters børn" og er alveg upp í sjónvarpinu til að sjá. Ooohhh, hvað ég man eftir þessum dropum, fékk þá 2svar á ári í nokkur ár sem barn. En nóg um það.
Nú er ég farin að læra!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
12.4.2007 | 07:35
Aum í bakinu...
...sit hérna, nývöknuð...og aum í hálsi og baki. Endalaust verið að minna mig á að nýtt rúm sé málið. Eftir samtalið við mömmu í gærkvöldi erum við sannfærð og ætlum líklega í bæinn á morgun að versla okkur rúm. Mikið verður það nú ljúft!! Hlakka til að vakna úthvíld og verkjalaus.
Annars er ég að fara með Jón Ingva til augnlæknis á eftir. Hann bað sérstaklega um að hann færi á svoleiðis stað. Kvartaði yfir því um daginn að hann sæi illa, sæi ekki það sem fólk væri að benda á og sérstaklega var hann sár yfir athugasemdum systur sinnar á þá leið; "Þú er BLINDUR!!". Mér finnst erfitt þegar þessir gullmolar mínir eru leiðinleg við hvort annað og hreyta í hvort annað, en það kemur fyrir, og ég veit að þetta er hluti af því að vera systkini og vaxa upp. En sárt er það, engu að síður. SKil svo vel í dag hvað mamma hlýtur oft að hafa verið þreytt á okkur...við vorum 4 systkinin (mömmumegin) og rifumst oft og mikið...og ég verð að játa á mig mikið líkamlegt ofbeldi...lamdi sérstaklega tvö systkina minna... Ekki skemmtileg tilhugsun, en hluti af fortíðinni sem ekki verður breytt.
En sem betur fer eigum við systkinin svo yndislegt samband í dag, svo ég er mjög þakklát fyrir það. Hérna er ein af okkur, tekin s.l. sumar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggfærslur 12. apríl 2007
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar