Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Bara smá blogg...

...fór og náði í Annemarie.  Frábært að fá hana.

...eldaði megagott pasta; mexíkóostur, paprikuostur, grænmeti (sveppir, kartöflur, paprika, brokkolí), rjómi, mjólk.  Grænmetið steikt smá á pönnunni, svo skellti ég rjómanum, mjólkinni og ostinum út í og lét malla.  Sauð pasta, skellti hvítlauksbrauði í ofninn...*slafr*...þetta finnst mér GOTT!!!

...Eirkíkur Hauks komst ekki áfram...börnunum mínum til mikil sama (mér finnst það líka glatað...hann var FLOTTUR).

...fór að bera út pésa á vegum sunddeildarinnar (verið að safna fyrir Esbjerg-ferðinni sem Ólöf Ósk og hennar árgangur fara í næsta vor...ég kemst vonandi með...), þori varla að segja það en þetta voru kosningapésar Sjálfstæðisflokksins...en gerði þetta bara af því að sunddeildin fékk MARGA monnínga fyrir!!!!!!!!

...núna ætla ég í bólið.

 

Peoples Gif Images

 


Í dag :)

Í dag kemur Annemarie Smile Það verður gaman.  Það veður líka mikil vinna þar sem við ætlum að hamast og keppast við...nú eru nefninlega ekkert svo margar vikur fram að verkefnaskilum hjá okkur...!!

Það sem ég ætla að gera núna er þetta: hita mér kaffi (latte að sjálfsögðu) og lesa í nokkra tíma.

smellið á kökuna... 




Flest getur gerst...

Morð eða sjálfsmorð? Ég er svo hlessa. 


Kvöld

Var í frábærum hittingi áðan með þremur kvennsum. Ótrúlega gaman og þroskandi - andleg framför eftir svona fundi, það er ekki spurning.  Algert æði. 

Það verður erfiðara og erfiðara að senda börnin í rúmið á skikkanlegum tíma...það er orðið svo bjart og önnur börn úti að leika.  Gott að það er að styttast í sumarfrí...  En við gerum þeim bjarnargreiða með að leyfa þeim að vaka frameftir...þau þurfa mikinn svefn, sérstaklega Ólöf Ósk og Jón Ingvi.  Jóhannes þarf ekki eins mikinn svefn...miðað við aldur.  Meiri orka í honum og hefur alltaf verið.  En við erum leiðinlegu foreldrarnir...og þannig er það bara stundum.  

Magnað hvað er mikið líf hérna úti.  Svona var þetta líka s.l. sumar, fullt af börnum úti endalaust, svo kom vetur og þá var eins og gatan væri barnlaus.  Svo núna eru ungarnir komnir út aftur og mikið fjör.  Æði. 

Jæja, er að spá í að fara í sturtu og þvo fiskibollusteikingarilminn af mér...mæli með fiskfarsinu úr Einarsbúð...!!!  Very goooood!!! 

Image hosted at bigoo images

 


WHO

Ég er um það bil að verða gráhærð...afsakið, gráhærðari...ég er búin að eyða fullt af tíma inni áPicture 121 WHO-heimasíðunni og leita að definition on alcoholism...og FINN EKKERT!!!!!  Ekki það sem mig vantar amk.!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ef einhver lumar á þessu...já, þá þigg ég afrit...ég er sko með þessa skilgreiningu...en ekki frá primær kilde...svo það telur ekki...

Þegar ég var alveg að tapa mér hérna áðan þá gerði ég svolítið gáfulegt.  Ég fór á hnén, ég hugleiddi, og hjólaði síðan út í búð og verslaði smá...m.a. gott úr salatbarnum í Krónunni.  Svo nú er ég hæfilega södd og til í tuskið aftur...svo WHO...here I come...!!!!!!!!!! 


Súkkulaðikaka með mangókremi

Fékk þessa uppskrift senda frá Guðrúnu áðan, en þetta er kakan sem við fengum ámango sunnudaginn...hreinasta sælgæti.

botn
1 bolli heslihnetur
1 bolli döðlur
1/2bolli kakóduft
2 msk kókosolía
1 tsk vanilluduft
1/2 tsk kanill

Setjið hneturnar í matvinnsluvél og malið fínt bætið síðan restinni að
uppskriftinni út í og blandið vel saman . Setjið í kökuform

krem
1/2 bolli kasjúhnetur
1/4 bolli agave síróp
1/4 bolli vatn
2 mangó fersk eða 1 poki frosið mangó

setjið kasjúhnetur, vatn og síróp í matvinnsluvél og blandið vel.
Bæta mangó út í og maukið uns kremið silkimjúkt.

Gott að setja í frysti
Ég reyndar átti ekki vanilluduft og notað því möndludropa í staðinn eins
átti ég ekki kasjúhnetur og þær ekki til í búðinni þannig í kremið notaði ég
bara mangó og frosin jarðaber og agavesíróp


Kari Martinsen!!!

Er einhver sem á þessa bók: "Omsorg, sykepleie, medisin" (eða á dönsku; "Omsorg, sygepleje, medicin")?????

Plííííííssss..... 


Mig langar að benda ykkur á...

...tvær ungar konur, sem eru að berjast við krabbamein.  Tvær af mörgum.  Ég hef fylgst með þessum hetjum í einhverja mánuði, eins og fjölmargir aðrir íslendingar.  

Ef þið eruð aflögufær langar mig að benda ykkur á þetta: 

Styrktarreikningur Ástu Lovísu er: 0525-14-102510 kt: 090876-5469

Styrktarreikningur Þórdísar Tinnu er: 0140-05-015735 kt: 101268-4039

Mig setur alltaf hjóða þegar ég les síðurnar þeirra, get engan veginn sett mig í þeirra spor.  Mér verður illt í hjartanu og fæ kökk í hálsinn, því þær eiga báðar börn á aldur við mín börn.  

Mig langar að biðja ykkur að hafa þær með ykkur í huganum og biðja bæn fyrir þær og fjölskyldur þeirra.

Ljós og kærleikur til ykkar allra Heart


Jóhannes

Jóhannes hjólaði sem sagt í tvo tíma og rúmlega það í gær. Þegar hann fór að sofa sagði hann mérJóhannes hjólar að kraftarnir hans hefðu flogið burt...!! Við urðum sammála um að það væri best að hvíla sig í nótt...  Eitt af því fyrsta sem hann sagði í morgun þegar hann vaknaði var; "Ég er búinn að fá kraftana mína aftur, þeir komu inn um gluggann"!!!  Yndislegt Heart

Svo rauk hann fram, í föt og skellti í sig einu glasi af Herbashake...enginn tími fyrir meira!! Og út að hjóla kl. 7.30!!

Einar hjólaði svo með honum í leikskólann og ég ætla að hjóla með honum út í búð eftir leikskóla.  Hann er æstur í að skoða heiminn á hjólinu.

Það var svo gaman að gefa honum hjólið, þvílík gleði.  Hann hjólaði fram og tilbaka þarna í gær, og söng allan tímann.  Það sem hann syngur þessa dagana er:

Það er gott að vera sem gleðin býr,
þar sem gerast sögur og ævintýr.
Svon´ er veröldin okkar,
sem laðar og lokkar,
svo ljúf og hýr.

Lítill heimur ljúfur hýr
lítill heimur ljúfur hýr,
lítill heimur ljúfur hýr
eins og ævintýr.

Yndislegt að fylgjast með honum hjóla og syngja svona gleðisöng InLove

Bæn dagsins:

"Guð láttu mig sýna þakklæti fyrir allt hið góða sem ég hef tekið sem sjálfsagðan hlut." 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband