Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Mér líður nokkuð vel...STÍGVÉL!!

Tounge

Fékk heimsókn í kvöld. Skemmtileg stelpa.  Hef hitt hana nokkrum sinnum áður og einu sinni spjallað við hana á kaffihúsinu.  Gaman.  Alltaf gaman að kynnast nýju fólki.  Fólki sem talar "sama tungumál".

---

Í gær þegar ég var að fara heim úr vinnunni var bíllinn rafmagnslaus fyrir utan...ég hafði gleymt að slökkva á ljósunum...arg...ég er sko ekki vön að þurfa að spá í ljósin á græna bílnum...en þessi rauði...skjóðurinn...  Jæja, ég var svo lánsöm að ein sem var á næturvakt bauð mér að taka bara sinn bíl þar sem ég var að koma aftur í morgun.  Yndislegt.

Ég flýtti mér svo að hringja í Einar til að biðja hann að redda bílnum þegar hann kæmi heim af næturvakt eða þegar hann færi á kvöldvakt... "Afhverju kveiktirðu ljósin, það þarf ekki!, sagði hann.  En ég vissi betur!!!  Hef sko oft startað bílnum í myrkri og engin ljós kviknað...og hana nú!!!  "Ástin mín, þau kvikna þegar þú stígur á bremsuna", sagði hann þá...  

OK, og HVERNIG átti ég að vita það????  (Þið sem munið eftir þessu með krúskontrólið...þið þekkið migCool)

---

Læt þetta gott heita í kvöld.  Er búin að baka heilan helling í kvöld líka.  Það verður VEISLA á morgun W00t

Gangið á vegum Æðri Máttar. 


Fékk þetta sent frá mági mínum...

Nýjar rannsóknir hafa leitt í ljós að bjór inniheldur kvenhormón og er því hættulegur fyrir karlmenn. Karlmenn sem drekka bjór taka upp hegðunarmynstur kvenna og ef drykkjunni er haldið áfram geta þeir átt á hættu að breytast í konur.

100 karlmenn voru látnir drekka bjór og eftir aðeins sex bjóra voru áhrifin orðin sýnileg á öllum mönnunum (100%).

Þeir:

- þyngdust
- fóru að blaðra tóma vitleysu
- gerðust alltof tilfinninganæmir
- gátu ekki keyrt
- gátu ekki hugsað rökrétt
- rifust útaf engu
- neituðu að biðjast afsökunar þótt þeir hefðu rangt fyrir sér.  

Að teknu tilliti til ofangreindra þátta er sterklega varað við bjórdrykkju meðal karlmanna.


hahaha!!!

Þrír synir afar guðhræddrar móður fóru að heiman til að spreyta sig á lífinu.
Allir áttu þeir miklu láni að fagna og græddu peninga í stórum fúlgum.
Að mörgum árum liðnum hittust þeir og ræddu meðal annars um gjafirnar
sem þeir höfðu sent aldraðri móður sinni.

„Ég reisti henni mömmu myndarlegt hús," sagði sá fyrsti.

„Ég sendi henni eitt stykki Mercedes Benz með bílstjóra," sagði annar.

„Ég gerði enn betur," sagði sá þriðji. „Þið munið hvað mamma hafði mikla unun
af að lesa Biblíuna og að hún er farin að missa sjón.
Þess vegna sendi ég henni stóran, brúnan páfagauk sem kann hana alla utan að.
Það tók tuttugu presta tólf ár að kenna páfagauknum þetta.
Verkefnið kostaði milljón dollara á ári, en það var þess virði.
Mamma þarf ekki annað en að nefna rit, kafla og vers
og þá fer páfagaukurinn með textann."

Skömmu síðar sendi móðirin sonum sínum þakkarbréf.

Til fyrsta sonarins skrifaði hún:
„Kæri sonur! Húsið sem þú byggðir er risastórt.
Ég bý aðeins í einu herbergjanna en þarf að þrífa allt húsið."

Sonur númer tvö fékk eftirfarandi bréf:
„Elskaði sonur! Ég er orðin alltof gömul til að ferðast.
Ég er alltaf heima og nota Bensinn aldrei. Bílstjórinn er óttalegur dóni."

Þriðja syninum sendi móðirin þessi skilaboð:
„Yndislega afkvæmi! Þú varst eini sonurinn sem gerðir þér grein fyrir
hvernig ætti að gleðja hana móður þína.

Kjúklingurinn var hreinasta hnossgæti!"

 

Clucking Chicken Gifs Images



Úff...mér brá...

...all verulega þegar ég las þessa frétt um rútuna í Kollafirði...það eru vinnufélagar mínir sem voru þarna á ferð, á leið í nokkurra daga ferð til Þýskalands þar sem m.a. á að skoða dvalarheimili...

Mér stóð aldrei til boða að fara í þessa ferð þar sem hún var ákveðin löngu áður en ég kom til starfa á Höfða.  Fegin er ég...!!

--- 

En ég var að vakna og veit lítið um þetta veður sem verið er að tala um... 


Held varla...

...augunum opnum...  Mikið verður ljúft að fá smá frí eftir næstu tvo daga...  Mér finnst minn heittelskaði enn meiri hetja núna en áður...skil ekki hvernig hann fer að.  Hann getur unnið og unnið og unnið.  Enda get ég alveg stundum fengið nett áhyggjukast...yfir að hann ofgeri sér.  En hann vill ekki hlusta á það og gerir lítið úr kvenlegum áhyggjum mínum...Tounge

Annars er lítið að frétta síðan síðast...enda búin að vera í vinnunni síðan þá...

Langaði bara að segja;

 

www.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.wswww.bigoo.ws

 


OK...bara smá meira...

...var að gera verkefni með Jóni Ingva fyrir skólann.  Þau vildu upplýsingar um fæðingardag (1. ágúst 2000 ), fæðingarstað (Helsingør), fæð.þyngd (4660 gr), lengd (58 cm) og fleira og fleira... OG MYNDIR!!!  Verð að deila nokkrum með ykkur:

Jón Ingvi splunkunýr1 Jón Ingvi splunkunýr pabbi og Jón Ingvi  

 

María systir og Jón Ingvi Jón Ingvi með Ólöfu Ósk


Það lítur út fyrir...

...að við séum búin að selja!!!

Það kom fólk að skoða á laugardagskvöldið (þegar ég bloggaði EKKERT!), það kom tilboð mánudag, við gerðum gagntilboð sama kvöld og það var samþykkt í gær!!! Afhending 15. janúar, svo Einar hefur nóg að gera...

---

Að öðru.

Ég hef löngum sagt að ef ég væri ekki með fjölskyldu þá vildi ég vinna eingöngu kvöldvaktir.  Ég held ég fari að éta það ofan í mig...  Þó væri eflaust fínt að vinna kvöldvaktir ef ég gæti sofið út alltaf daginn eftir vakt.  Undanfarna daga hef ég sannarlega sofið, en ég hef vaknað kl 7 með familíunni og farið svo upp í aftur síðar.  Og það er bara ekki eins gott.  Ég er eins og úldin hæna (hvernig sem hún er) þegar ég vakna, skrítin í hausnum (meira en vanalega) og já, ekki nógu hress.  

Nóg um það...en ég er sem sagt að fara á enn eina kvöldvaktina...og svo aftur á morgun...svo er morgunvakt á föstudag og þá er ég komin í helgarfrí.

Er að spá í að skella mér á fræðsludag síðar í sept. Það er "sáradagur".  Fer reyndar fram á ensku...en það eru danir sem halda þetta...vildi óska að þeir myndu bara tala dönsku...en það er eigingjörn ósk...I know!!  En þetta er spennandi efni.  Ekki að mér þyki sár eitthvað æðisleg...þvert á móti, ég er eiginlega hálf hrædd við þau...hrædd um að "pleje" þau vitlaust, hrædd um að meiða fólk...og oft eru þessi sár ekki sérlega geðsleg.  Svo þá er að stíga inn í óttann!!! Svo mikið hef ég lært á ferð minni gegnum lífið, að ef ég óttast eitthvað þá er að taka á því!  Og ég kem sterkari út hinu megin.

----

Að lokum þetta:

vinir

 


Heilinn minn...

Your Brain is Blue
Of all the brain types, yours is the most mellow. You tend to be in a meditative state most of the time. You don't try to think away your troubles. Your thoughts are realistic, fresh, and honest. You truly see things as how they are. You tend to spend a lot of time thinking about your friends, your surroundings, and your life.
 
Og núna fer ég að sofa!!!!!!!!!!! Góða nótt..........Sleeping

Var að koma heim...

...af kvöldvakt.  Er rúmlega hálfnuð með þessa vaktatörn, 5 vaktir búnar, 3 eftir.  

Held ég skríði í bælið og reyni að sofna, svo ég verði hress og kát þegar ég þarf að vekja börnin kl. 7.  Minn heittelskaði er á næturvakt og verður næstu 3 nætur.

---

Mikið er ég glöð að ég var í kjól með ermar...reyndar kastaði ég ekki brúðarvendinum mínum heldur... 

pic24355


Ormurinn okkar

Jóhannes reynir að stjórna okkur foreldrunum, og systkinunum.  Hann komst lengi vel upp með það, ef hann vildi eitthvað sem systkini hans voru með þá öskraði hann og þau létu hann hafa hlutinn...ekki gott.  En þau nenntu ekki að hlusta á hann orga, svo hann gat notað þetta "verkfæri".

Svo fórum við að taka á þessu s.l. vetur.  Núna notar hann fýlu.  Alveg magnað hvað þessi annars endalaust glaðlyndi drengur getur farið í heiftarlega fýlu.  Yfirleitt fær hann nú bara að eiga sig í sinni fýlu...

Áðan var pabbi hans að fara upp í lóð og ætlaði að keyra hann í leiksskólann í leiðinni.  Minn maður var ekki sáttur.  Hann vildi að ég myndi "skukla" honum í leikskólann.  Fór í þessa líka brjáluðu fýlu...en við vorum ekki á því að láta hann stjórna...

Ég reyndi að klæða hann í útiföt og skó...sem hann tætti af sér jafn óðum, hann neitaði að standa í lappirnar... Það endaði með að pabbi hans tók hann eins og kartöflupoka yfir öxlina og föt og skó í hina hendina.  Jóhannes orgaði á leiðinni út í bíl!! Og mér varð illt í hjartanum.  Finnst erfitt að knúsa þau ekki þegar þau gráta, þessar elskur allar.  Beit í vörina og gerði ekkert.  

Við neitum að tipla í kringum hann á tánum, og við neitum að láta hann komast upp með að stjórna svona.  Það er alltof mikil ábyrgð fyrir þennan litla orm að stjórna heiminum...þó hann haldi að hann vilji það Wink

Jamm, þetta var morgunhugleiðingin...eða morgunbloggið...eða eitthvað.

Ást&kærleikur... 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband