Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Ég steingleymdi...

...að segja ykkur að við fórum að sjá MAMMA MIA!

Og Ó MÆ GOD! Ekkert smá fráááááábær mynd. Ég VERÐ að eignast hana þegar hún kemur út! Kemur, þeim sem þekkja mig, EKKERT á óvart!

Ég ELSKA ABBA og hef gert, ja, síðan ég man eftir mér. Og ég ELSKA söngleiki, t.d. Greace, Dirty Dancing...og svo var ein ELD-ÆVA-FORN mynd sem hét eitthvað "Bræður 7 í konuleit" og hún var til á vidjó heima á Ormsstöðum og hún var æði og endalaust horft á hana. Jamm, sumum finnst ég vonlaus...en mér finnst það ekkiLoL

Mamma-Mia-movie-01

mamma-mia-poster


Ég er komin heim...

...í heiðardalinn :)

Við hjónakornin vorum í okkar "árlegu" helgarferð í höfuðborginni. Það var árshátíð hjá Norðuráli í gærkvöldi og við vorum á hóteli tvær nætur. Mjög ljúft að eiga svona tíma saman tvö ein.

Krakkarnir fóru líka í helgarferð, þau fóru í sumarbústað með ömmu sinni og eru alsæl með helgina.

Mjög vel heppnuð helgi og allir sælir með sitt. 

Við skemmtum okkur konunglega á árshátíðinni, sem var haldin á Brodway. Spútnik spilaði á ballinu og er alveg frábær ballhljómsveit. Við dönsuðum amk meira en áður hefur gerst...vorum örugglega 1½ tíma á dansgólfinu í allt.  

Maturinn var frábær og nóg af honum, og ég fékk alveg snilldarlegan desert. Einar spurði hvort það væri hægt að fá sykurlausan desert og ég fékk disk HLAÐINN af ferskum, niðurskornum ávöxtum. Bara geggjað.

Jamm, þetta var helgin okkar. Alger sælaInLoveHeart


Ég verð að sýna ykkur...

...mynd af ofurkrúttinu okkar;

braggðað á fífliHér er hún Ólöf Ósk, fyrsta sumarið í lífi sínu. Alveg yndisleg, eins og hún er ennHeart


pilsin og fleira

Hér eru myndir af pilsunum sem ég saumaði í fyrradag:

3 pilsSvo er hægt að sjá þau eitt og eitt á þessari síðu!

Annars ekkert nýtt.


Einelti

Mér barst tölvupóstur með meðfylgjandi skjali og ætla að birta það hér, í stað þess að senda út og suður. Bréfinu fylgdi eftirfarandi orðsending:

Kæri lesandi.
Ég þarf að ná til þín, þú skiptir máli. Þín umhyggja og samhygð getur breytt miklu.

Þess vegna bið ég þig um að lesa þetta bréf frá mér til þín, það er einlæg ósk mín.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Ég bara má til...

...að svara kommentum!

Ég saumaði 3 pils í gærkvöldi og þau eru bara cool, sérstaklega eitt þeirra! Ég tók myndir og mun birta þær fljótlega...bara ekki núna.

--

Annars get ég sagt ykkur að það er sko ekki allt! Nei, ég fór nefninlega í BERJAMÓ!!! Og týndi smá af berjum. Ekkert brjálað magn, enda ekki með týnu og bara ein á ferð. En mikið var þetta notalegt, alein úti í náttúrunni í blíðskaparveðri. 

Þannig að, ég er nokkuð ánægð!

Svo fórum við hjónin í pottinn og lágum þar í góða stund, og það var líka ansi ljúft. 

Síðan var það vinnan...og ég lýg ekki ef ég segi að þetta var sú mest busy vakt sem ég hef upplifað síðan ég byrjaði þarna...ég hef ekki sest niður alla vaktina, nema rétt meðan ég hringdi í lækni...svo ég er þreytt!!!  Þess vegna engar myndir núna...bara seinna...fljótlega sko...

Ást til ykkar allra þarna úti í nóttinni, ég er farin að sofa...(enda fór ég á fætur kl. 7.00 í morgun og fór í ræktina áður en ég fór í berjamó...svo ég er búin að standa í stórræðum í MARGA klukkutíma!!!LoL

Gúdd næt!!Sleeping


Skærin frægu!

Jæja, ég svaf auðvitað lengi í dag líka...var sko á kveldvakt...þannig að ég hef afsökunLoL(ok...ég er svefnpurka...Sleeping...)!! Einar vaknaði með börnunum og ólíkt mér þá skríður hann ekki upp í aftur.

Við fórum svo út á stjá (þegar ég var vöknuð...) og settum auglýsingu í Póstinn (íbúð til leigu) og síðan fór ég og keypti mér SKÆRI!!! Svo nú er ég sko búin að sníða tvö pils í viðbót! Þá er bara að setjast við saumar og kannski ég geri það bara í kvella. Strákarnir fóru víst afar seint í bælin sín í gærkvöldi, voru að horfa á fótboltaleik (en ekki hvað??!) svo þeir fá að fara snemma að sofa í kvöld. Einar er að fara á fund og prinsí á eitthvað dæmi í skólanum. Svoooo, ég hef plenty of time!!!

Hver veit nema eitt pilsið verði hluti af árshátíðardressinu???!!!!


Engin skæri keypt!

Einfaldlega vegna þess að ég dröslaðist ekki framúr fyrr en um hádegi... Fór reyndar á fætur í morgun og gerði nesti fyrir Jón Ingva og keyrði svo Jóhannes á leikskólann upp úr 9 en fór svo að sofa aftur...og svaf til 12.eitthvað...!

Náði því ekki að athuga með skæri, en náði að þvo þvott og gera ýmislegt smálegt. Verslaði og eldaði svo fyrir familíjuna þar sem það er æfingadagur (allir krakkar á æfingu rétt fyrir kvöldmat). Svo fór ég að vinna og er sem sagt að laumast í tölvuna í vinnunni...uss...jæja, ætla að fara að vinna!

Ást til ykkar á þessum yndislega degi...sem viðraði vel til berjatýnslu...en ég veit ekki hvar berin eru...hef aldrei komið í Skorradal en þar er víst fínt berjaland...þar að skoða þetta!

Blaber_agust_2007

Knús...


« Fyrri síða

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband