Leita í fréttum mbl.is

Ég bara má til...

...að svara kommentum!

Ég saumaði 3 pils í gærkvöldi og þau eru bara cool, sérstaklega eitt þeirra! Ég tók myndir og mun birta þær fljótlega...bara ekki núna.

--

Annars get ég sagt ykkur að það er sko ekki allt! Nei, ég fór nefninlega í BERJAMÓ!!! Og týndi smá af berjum. Ekkert brjálað magn, enda ekki með týnu og bara ein á ferð. En mikið var þetta notalegt, alein úti í náttúrunni í blíðskaparveðri. 

Þannig að, ég er nokkuð ánægð!

Svo fórum við hjónin í pottinn og lágum þar í góða stund, og það var líka ansi ljúft. 

Síðan var það vinnan...og ég lýg ekki ef ég segi að þetta var sú mest busy vakt sem ég hef upplifað síðan ég byrjaði þarna...ég hef ekki sest niður alla vaktina, nema rétt meðan ég hringdi í lækni...svo ég er þreytt!!!  Þess vegna engar myndir núna...bara seinna...fljótlega sko...

Ást til ykkar allra þarna úti í nóttinni, ég er farin að sofa...(enda fór ég á fætur kl. 7.00 í morgun og fór í ræktina áður en ég fór í berjamó...svo ég er búin að standa í stórræðum í MARGA klukkutíma!!!LoL

Gúdd næt!!Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Já konan er bara full af orku eftir öll kúrin fram að hádegi.   Nei usss þetta er ljótt af mér.  En svakalega ertu dugleg.  Kannast sosum við að taka svona tarnir það er svo mikið ég eitthvað.

Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 4.9.2008 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband