Leita í fréttum mbl.is

The story of my life ;)


Þú fellur fyrir froskum.


Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa leikur enginn vafi á hvaða manngerð/dýrategund þú fellur fyrir. Þú laðast að froskum eins og segull að stáli, fluga að mykjuhaug, minniháttar stjarna að ljósmyndara Séð og heyrt. (Hvers vegna að segja hlutina einu sinni þegar hægt er að segja þá þrisvar).

Froskar sýna sjaldan rómantíska tilhneigð og geta átt það til að vera ansi óhugulsamir. Láttu þér ekki bregða þótt froskurinn gleymi afmælisdeginum þínum, brúðkaupsdeginum eða jólagjöfinni. Þótt þú gengir með post-it miða á enninu sem á stæði "ég vildi að froskurinn minn myndi koma mér á óvart og kaupa handa mér blómvönd" stæði blómavasinn tómur á stofuborðinu um ókomna tíð.

Þeir sem hyggja á samband við frosk þrátt fyrir það geta endanlega kvatt sjónvarpsfjarstýringuna. Froskar deila henni ekki með neinum. Búðu þig undir löng kvöld yfir íþróttum og Jean-Claude van Damme. Búðu þig einnig undir dimm kvöld því ekki láta þig dreyma um að froskur skipti um ljósaperu.

Finnist þér skemmtilegt að tína skítuga sokka eftir aðra upp af gólfinu átt þú sannarlega samleið með frosknum. Þyki þér það hins vegar ekki hápunktur tilverunnar og þú gerist svo djörf að biðja froskinn að hirða sjálfan upp eftir sig sokkana máttu eiga von á að hann hækki í iPodinum sínum og láti sem hann heyri ekki í þér.

Fellur þú fyrir prinsum eða froskum?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Var búin að prófa þetta einu sinni man ekki hvað ég fékk, frinsar eru ágætir.  knús til þín

Ásdís Sigurðardóttir, 10.1.2009 kl. 16:41

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Þegar ég les þetta þá er ég ekki frá því að ég kannist við ýmislegt frá fyrstu árunum *okkar*...en froskurinn minn hefur sannarlega breyst í prins, svo það er greinilegt að allt er mögulegt :)

Í dag er prinsinn minn rómó og tillitssamur, tekur sjálfur sokkana sína upp og ég veit ekki hvað og hvað. Svona geta kraftaverkin gerst

SigrúnSveitó, 10.1.2009 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband