Leita í fréttum mbl.is

hellúúúú.......

Jæja, föstudagskvöld og ég sit við tölvuna...aldrei slíku vant (...eða þannig). Reyndar erum við mæðgur búnar að gera gagnlega hluti í tölvunni í kvöld. Hvernig fór fólk að áður en tölvur fóru að tröllríða öllum heimilum??? Hvernig skipulagði fólk fermingar? Ja, ég bara spyr LoL

Við útbjuggum boðskort, byrjuðum á skipulagsdagatali, sem byrjar 3 vikum fyrir fermingu. Myndasjóvið er tilbúið, löngu tilbúið! (Jamm, ég þyki dönsk og jeg er stolt af det!!!) Gestalistinn var yfirfarinn og einhverjum bætt inn. Einar myndi vilja bæta MÖRGUM við, finnst ómögulegt að bjóða *bara* hundraðtuttugogeitthvað...eða kannski er það alls ekki það. Málið er bara að við eigum bæði stórar fjölskyldur, MÖRG frændsystkini, og boðslistinn færi auðveldlega vel yfir tvöhöndröð ef við létum gamminn geysa... En við verðum að vera skynsöm, og svo er það líka þannig að þetta er dagur Ólafar Óskar og hún hefur um þetta að segja. Einar verður bara að bjóða í fertugsafmælið sitt í mars...og bjóða þá þeim sem hann þekkir og vill hafa með. 

Mér tókst að næla mér í slatta af bollum í dag, Gréta vinkona kíkti í kaffi og sagði mér að hún væri að fara að taka til í eldhússkápunum og væri að fara að losa sig við helling af bollum og diskum. Mér fannst snilldarhugmynd að ég fengi þetta...og Gréta var sammála Wink Svo nú er ég með kassa hér með bollum og undirskálum og hliðardiskum og fleiru. Bara snilld. Takk, Gréta mín (ef þú lest)!!

Á morgun erum við að fá góða gesti, Ragnhildur, Inga og litla sæta Hjördís Huld ætla að skottast hingað á Skagann. Við hlökkum mikið til að knúsa þær allarInLove

En nú held ég svei mér að ég skutli mér í sturtu og skríði svo í bælið....Sleeping

Molinn:

"Dauðinn er ekki mesti harmleikur lífsins, heldur það sem við látum deyja innra með okkur meðan við lifum."

- Norman Cousins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Snillingur ertu

Hrönn Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 23:37

2 Smámynd: JEG

Ef maður ekki skipuleggur sig vel getur endað illa þegar mikið liggur við.  Snilldar gullmoli mín kæra og svo sannur. Knús og kossar. 

JEG, 10.1.2009 kl. 11:37

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð lokasetningin hjá þér, takk fyrir þetta. Kærleikskveðja til þín og þinna.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.1.2009 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband