Leita í fréttum mbl.is

Nú er komið að því!!!

Ég lét verða af því að fara út að hlaupa! Reyndar hljóp ég inni í Akraneshöllinni, því hlaupabrautin þar er miklu mýkri en malbikið...og ég vil ekki taka óþarfa sénsa með hnéð mitt.

Fyrir þá sem ekki vita það þá á ég tæplega 2ja ára hlaupaferil að baki, byrjaði 2. jan. 2004 og þessum flotta ferli mínum lauk svo með rifnum liðþófa síðla hausts 2005 Frown

Þetta voru mér mikil vonbrigði því ég var svo ánægð með hlaupin. Leið alltaf svooooo vel á eftir, og gott að komast út í frískt loft. Fyrir utan að þetta var í fyrsta sinn á ævinni sem ég gat haldið út einhverja íþrótt í lengri tíma...!!

Ég tók meira að segja þátt í tveimur kvennahlaupum, þar sem ég hljóp 5 km í hvort skipti. Fyrra hlaupið var stór áfangi fyrir mig og ég var rosalega stolt af mér. Fékk diplómu og alles Smile Bæði hlaupin voru iForm kvindeløb.

2. febrúar 2007 var ég svo skorin upp og hluti af liðþófanum var tekinn. Ég jafnaði mig ekki strax og er t.d. ekki enn farin að geta farið á hnén og mun líklega aldrei geta (en hver veit?!). Þegar ég byrjaði að æfa í Curves í september á síaðsta ári fóru góðir hlutir að gerast með hnéð, því jafnhliða því sem vöðvarnir kringum hnéð styktust þá leið hnénu mínu betur.

Hugurinn hefur verið við hlaup...svo ég ákvað bara að láta vaða. Það kemur bara í ljós hvernig hnéð mitt þolir þetta.

Ég ákvað að fara að ráði eins vinar míns, sem er mjög reyndur hlaupari, og fara mjög rólega af stað, labba og hlaupa til skiptis. Þannig að:

Í dag fór ég í allt 5 hringi í Akraneshöllinni:

Upphitun: röskleg ganga 1 hringur

hlaup: 1 hringur

röskleg ganga: 1 hringur

hlaup 1 hringur

röskleg ganga (niður"hitun"): 1 hringur

Hringurinn er 362 metrar svo að ég fór í allt 1810 metra. Þar af hljóp ég 724 metra. 

Svo er stefnan sett í Höllina aftur á morgun...fyrir eða eftir messu...kemur í ljós. En á morgun er 1. messa verðandi fermingarbarns Smile

Akraneshöllin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flott að geta hlaupið svona inni þegar veður gerast válynd ;)

Kostar eitthvað að fara þarna inn eða má hver sem er skokka hringi? 

Hrönn Sigurðardóttir, 11.10.2008 kl. 15:31

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Það kostar ekkert, maður skellir sér bara inn. Þetta er reyndar alveg hreint snillllldarhús! Stákarnir eru þarna meira og minna allar helgar að spila fótbolta, og það er alltaf krakkahópur að spila þarna. Algjör forréttindi, finnst okkur.

SigrúnSveitó, 11.10.2008 kl. 16:04

3 Smámynd: JEG

Úfff ég ætti nú ekki annað eftir en að fara að hlaupa .....en það er einmitt ólag á hnjánum mínum sem einmitt stoppa mann í að geta farið á skeljarnar og þannig.  Svona fer maður með sjálfan sig ....stendur vitlaust og misbíður hnjánum þannig að ég fer ekki í svona æfingar fyrr en eftir þónokkur kg   En það rennur af manni núna þegar maður þarf að hamsat svona alla daga þar sem kallinn er úr leik. En maður er bara svo fljótur að vinna upp allt tap nema í bankanum hahahah....

Knús og klemm mín kæra og glæsilegur árnagur hjá þér.  Svona hallir eru snilld það er ekki spurning. 

Kveðja úr sveitinni 

JEG, 11.10.2008 kl. 22:11

4 Smámynd: Úrsúla Manda

Þú dugleg að byrja aftur að hlaupa!! Öfunda þá sem geta hlaupið, ég hef aldrei getað hlaupið neitt að ráði. Fæ hlaupasting eftir hálfa mín. og hlunkast niður. Spurning um að prufa enn og aftur og fara sér þá hægt... mjög hægt, og þá í skjóli nætur

Úrsúla Manda , 11.10.2008 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband