Leita í fréttum mbl.is

Í rigningu ég syng!

Og það þýðir sko ekkert annað. Ef ég ætla mér að vera í fýlu í rigningu (og roki...) þá mun ég ekki brosa næstu daga...miðað við spánna og ég nenni sko ómögulega að eyða tímanum í fýlu og svoleiðis leiðindi!

Þess vegna:

Í rigningu ég syng,
í rigningu ég syng,
það er yndislegt veður...
...og mér líður vel!!

(lag: I´m singing in the rain)

Og ég held svei mér þá að ég bara dansi líka!

 

myspace comments

 

--

Við hjónakornin brugðum okkur af bæ í dag. Fórum á Ársþing Neytendasamtakanna. Það var fínt. Athyglisverð, og nokkuð skemmtileg tala um ESB, sem einhver hagfræðingur að nafni Ragnar hélt. Nýtt sjónarmið, fyrir mig amk. Náði þessu þó ekki nógu vel til að geta tjáð mig meira um það...

 pabbi minn

Pabbi hélt auðvitað nokkrar tölur, enda formaður Neytó... Ég er svo stolt af honum og þeirri vinnu sem hann hefur lagt í Neytó undanfarin MÖRG ár. Grínast stundum með að Neytendasamtökin séu yngsta barnið hans...og fær óskipta athygli þar sem við hin erum öll flogin úr hreiðrinu Tounge

 

Við fórum svo út að borða með pabba og Lilju sys. og Elínu sys. og Brynjari (manni Elínar). Mjög skemmtilegt, og ef þið lesið þetta elskurnar mínar allar; ástarþakkir fyrir samveruna í dag. Elska ykkur öll afar mikið.

 

-- 

Skvísan var að passa strákana og gekk vel. Hún fékk vinkonu sína til að koma og vera með sér. Svo eru afi og amma í næstu götu og hefðu komið yfir fyrir hálft orð, hefði þess þurft. Gott að eiga góða að.

 

En vitiði...nú er ég þreytt og sybbinSleeping...og ætla að lokka ástina mína til að koma og hlýja mér...InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Ohhh veistu við erum sko ekki búin að syngja þessa rigningu í dag ónei enda bara klikkun hvað veðrið er fúllt.  Ætlðum að byrja að smala en það var sko ekki hundi út sigandi svo hér var bara verið að svekkjast og klára að laga sexhjólið.

KNús til baka mín kæra.

JEG, 19.9.2008 kl. 23:46

2 Smámynd: Renata

ó ég vissi ekki að það er pabbinn þín, en þú getur verið stolt af honum

Renata, 20.9.2008 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband