Leita í fréttum mbl.is

Núna...

...er ég komin í helgarfríííí...!!! Síðasta helgarfríið mitt í gömlu vinnunni! Svo vinn ég næstu helgi og kveð Höfða, og byrja á rúntstandinu milli Akraness og Reykjavíkur. Margir spyrja hvort ég kvíði því ekki að keyra á milli, og ég hef alltaf sama svarið; "NEI, ég kvíði því ekki"!

Nóg að gera um helgina og best væri ef það yrði nokkuð stillt veður, því Einar ætlar sér stóra hluti í húsinu utanverðu ef það er stætt... Og ég hef nú hugsað mér að taka til hendinni líka.

Svo er ég að fara í fertugsafmæli hjá vinkonu minni á laugardagskvöldið, hún ætlar að halda stelpupartý. Það verður eflaust mjög gaman, enda hópur af skemmtilegum stelpum sem ég á von á að hitta þar!

En núna er næst á dagskrá að koma tveimur yndislegum drengjum í bælin sín.

Kveð ykkur að sinni og langar að deila með ykkur þessum "stud" sem Lilja sys. sendi mér!


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Það er nú ekki slæmt að keyra þarna á milli ja nema rokið og þá helst við göngin Reykjavíkurmegin sennilega.  Annars ef bíllinn er góður þá er ekkert sem stoppar mann nema löggan.

En góða semmtun í afmælinu og eigðu ljúfa daga framundan mín kæra.  Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 18.9.2008 kl. 21:40

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehehe og ég sem var orðin svo spennnnnnnnnnt..

Hrönn Sigurðardóttir, 18.9.2008 kl. 22:47

3 identicon

hahhahahahahaha.. fyndin. kv. Salný

Salný (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 04:40

4 identicon

Góða helgi sæta fjölskylda .. knús!  R

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 07:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband