Leita í fréttum mbl.is

Í ofnæmiskasti...!

Jæja, dagurinn í dag hefur boðið upp á ýmislegt.

Í morgun fór ég upp í vinnu í tvo tíma, að mæla blóðsykur hjá samstarfsfólki mínu.  En í næstu viku er heilsuvika og var sem sagt byrjunin á heilsunni í dag og í gær.  Það var mældur blóðsykur, blóðþrýstingur og svo kom starfsfólk frá Rannsókn á SHA og tók blóðprufur, m.a. kólesteról.

Það var frábær þátttaka, ca 80% af starfsfólkinu mætti!!!  Eða rúmlega 70 manns.  

--

Svo fór ég heim, en vinkona mín var að koma í kaffi og spjall.  Við áttum góða stund saman áður en hún dreif sig í vinnuna.

--

Ég fór út í búð, keypti hádegismat og fór upp í hús til míns heittelskaða, sem var að verða búinn að setja upp vegg sem skilur gestaherbergið frá forstofunni.  

Þegar þarna var komið var ég komin með heiftarlegan höfuðverk..

--

Fór í búð, keypti beikon (beikonbollurnar eru fyrst núna í matinn...), sótti drengina og heim.

--

Ég held ég viti alveg orsökina fyrir þessum höfuðverk mínum...hann byrjaði að herja á mig þegar ég var að mæla blóðsykur hjá einni kerlunni...sem hafði líklega dottið ofan í ilmvatnsglasið sitt í morgun...

--

En ég held ég hafi það af að elda kvöldmat og svo verð ég að muna að taka ofnæmislyf...amk vera með þau á mér svo ég geti tekið þau þegar ég lendi í svona aðstæðum...

--

Þannig að...ef þið ætlið að koma í heimsókn þá væri ég afskaplega þakklát ef þið mynduð setja sem minnst af ilmefnum á ykkur...

Best að reyna að gera eitthvað...

Ást... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Katrín Jónsdóttir Ármann

Hí hí

Gott að heyra

Já þetta passar kanski ekki við færsluna hér að ofan.

En " ég er alltaf að reyna þú veist hvað ég meina"

knús 

María Katrín Jónsdóttir Ármann, 28.2.2008 kl. 18:04

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég lofa að vera bara með mína boddí lýkt þegar við hittumst næst.  Vona að þetta gangi fljótt yfir.  Ég var að dást að myndum af húsinu ykkar, rosa verður gaman að flytja.   Leap Year 

Ásdís Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 18:28

3 Smámynd: Sigrún Óskars

Sniðugt að hafa svona skipulagða heilsuviku. Er þetta einhvers konar heilsuefling?

Eins og við vitum þá getur fólk gengið um með allt of háan blóðþrýsting eða of háan blóðsykur og veit ekkert af því. Svona mælingar eru þess vegna frábærar, því fólk er ekkert að láta mæla þetta bara "just in case".

kollega kveðja, 

Sigrún Óskars, 28.2.2008 kl. 20:11

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Ójá, það er allt svo gaman. Verður gaman að flytja og eintóm hamingja :)

Sigrún, þetta er einskonar heilsuefling, verðum með fyrirlestur um næringu, stafgöngu, vatnsleikfimi, gönguferð. Og endum svo föstudaginn á kaffihúsi. Svo þetta er hópefli líka.  Mjög gott. 

SigrúnSveitó, 28.2.2008 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband