Leita í fréttum mbl.is

Fallegur dagur

Snjór og sól.  Það er svo fallegt úti.  Fjallasýnin.  Yndislegt.  Ísland er svo fallegt!! 

Í gær, þegar við vorum í höfuðborginni fórum við og fengum okkur hammara á Olís rétt hjá Guðbjörgu frænku...hvað heitir nú hverfið...þarna á leið út úr bænum í átt að Hveragerði...?!!!  

En sem við keyrðum þarna ca í austurátt þá blöstu við okkur snævi þakin fjöll.  

Þvílík fegurð!!

Ég persónulega, þurfti að flytja til Danmerkur í 9 ár til að læra að meta Ísland...eða til að hreinlega sjá það!!  

Núna nýt ég þess!!  

Þegar ég horfi kringum mig og sé þessa fegurð þá sönglar alltaf í höfðinu á mér:

"Ísland er land þitt og ávallt þú geymir..."

Þetta lag er í miklu uppáhaldi hjá mér og Jóni Ingva InLove

Jæja...þarf að græja mig fyrir vinnu...

Ást til ykkar allra... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Right back at you lovely girl. 

Ásdís Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 17:58

2 Smámynd: María Katrín Jónsdóttir Ármann

Ísland er gott. En það sem meira er, að á litlum stað,  austast á þessu fallega landi má finna miðpunkt alls sem við þekkjum í þessum heimi.
Þar skín sólin skært og lognið frægt fyrir að hlæja . Hef að vísu  persónulega aldrei heyrt það. En sjálfsagt hef ég bara ekki hlustað nógu vel

knúsisnús 

María Katrín Jónsdóttir Ármann, 27.2.2008 kl. 20:39

3 Smámynd: Gísli Gíslason

það er nú sagt að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þannig eykst oft þjóðerniskenndin í manni við að búa erlendis

Gísli Gíslason, 27.2.2008 kl. 21:47

4 Smámynd: Linda litla

Ég er sammála, Ísland er gott, en það er komið gott af þessum vetri. Minndi segja að það væri komið nóg af snjó.

Linda litla, 28.2.2008 kl. 08:17

5 Smámynd: Úrsúla Manda

Gæti ekki verið meira sammála þér... já og Maríu Katrínu líka  Ég þurfti reyndar bara að flytja til Reykjavíkur til að sjá hvað Neskaupstaður er guðdómlegur staður  Skil ekkert í þér að koma ekki hingað  það væri næga vinnu að fá fyrir þig og þína.

Úrsúla Manda , 28.2.2008 kl. 08:49

6 identicon

Mikið er ég sammála þér. Ég bjó í DK í 5 ár og mikið saknaði ég fjallanna, og þó sérstaklega fjallsins míns, Ingólfsfjalls.

Svona getur maður nú verið skrítinn.

Kveðja

Berglind- garnaflækja

Berglind (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 09:57

7 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

jebb Ísland ER fallegt

hvort sem það er í vetrarskrúða eða sumarbúningi.

Á frekar bágt með að þola umhleypinga og slabb

Guðrún Jóhannesdóttir, 28.2.2008 kl. 13:14

8 Smámynd: Dísa Dóra

Ísland er besta land í heimi - er ekki ofanaf því og sérstaklega ekki eftir að hafa búið svo lengi erlendis

Þessi söngur ætti að vera þjóðsöngur íslendinga hef ég lengi sagt

Dísa Dóra, 28.2.2008 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband