Leita í fréttum mbl.is

Borgarferð

Við hjónakornin fórum í höfuðborgina í dag.  Þurftum að skoða næturljós (sem eiga að vera á svefnherbergisganginum) og fleira.  M.a. fara í Toys ´r us og kaupa Spiderman Flexitrax sem strákarnir eru búnir að vera að safna sér fyrir síðan um áramót.

Ég verð að hrósa manninum mínum og Toys ´r us!!  Þegar ég hringdi í byrjun janúar fékk ég að vita að þetta dót kostaði 5999 kr. og drengirnir söfnuðu þeirri upphæð.  Svo í dag, þegar við ætluðum að fara að borga þá kostaði þetta 7299...við ekki alveg sátt.  En ég of meðvirk...en ekki Einar.  Hann sagðist nú ekki sætta sig við þetta.  Stúlkan á kassanum sagði; "Þetta hefur verið á tilboði í janúar en ekki núna...núna erum við með aðra hluti á tilboði".  Ok...nei...EKKI OK!!!  

Einar vildi fá að tala við yfirmann...sem hann fékk...Einar var tilbúinn að æsa sig...sagði manninum að hvað væri málið og hann sagði; "Þið fáið þetta á því verði sem ykkur var sagt"!!!!

Búið mál!

Svo fórum við í Egg...ætlum ekki að versla innréttingu þar!!  Að fá tilboð kostar 5000 krónur!!  Sem gengur upp í ef maður verslar hjá þeim...annars bara too bad.  Svo var konan bara frekar hrokafull og dónaleg...

Þannig að við fórum í Ikea!!!  Og það fyrsta sem við sáum var innréttingIN!!!  Í eyjunni var snilldarlegur ísskápur...eða öllu heldur ísskúffur!!  Og ég kolféll!!!  Svo ef við skiptum ekki um skoðun aftur þá verður þetta sú innrétting sem við munum velja.  Ætlum að teikna eldhúsið í forritinu þeirra og fara og fá tilboð.  

Þetta er svo spennó að það hálfa væri nóg!!!

En nú held ég að ég ætli að fá mér kvöldmat...og fara svo út og hitta fólk!!!  Gaman, gaman. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Flott hjá ykkur (Einari) að verða ákveðin og fá það verð sem ykkur var gefið upp. Endalaust reynt að taka okkur neytendur í .......tið.  Knús .. hlakka til að sjá teikningarnar af eldhúsinu. 

Hugarfluga, 26.2.2008 kl. 19:03

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Maður á alltaf að vera ákveðin, ég hefði gert eins og EInar.  Var einmitt búin að frétta af þessum ísskúffum og líka hitaskúffum, þú hlýtur að hafa séð þær.  Þú semt ert nú með myndarlegri bökurum sem ég þekki.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.2.2008 kl. 19:54

3 identicon

5000 að fá tilboð! en fáránlegt, iss. íkea er fínt og ég hef séð þessar skúffur, algjör snilld.

knús 

jóna björg (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 10:31

4 identicon

Hæ hæ

Já gott hjá Einari að láta þá heyra það.. klapp klapp.... 

Vildi kvitta fyrir komu minni.....  Og ég verð dugleg að fylgjast með ykkur.

Kv.

Hildur

Hildur (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband