Leita í fréttum mbl.is

Mikið líður mér vel!

Búin að fara að æfa og búin að rabba við ÆM.  Sem sagt búin að rækta bæði líkama og sál í dag.  Ekki að ég verði nokkurntímann búin...

Mikið er ég þakklát fyrir lífið, lífið sem ég á í dag.  Ég hef stundum sagt að ég hafi prófað að vera í helv... og veit hvernig er að vera þar.  Mig langar aldrei aftur þangað!!!

Meðan ég var í helv...  var ég búin á því, bæði á líkama og sál.  Ég var bakveik...ung kona!  Og hélt að það væri mitt hlutskipti í lífinu.  Ég grét mikið, og átti mjög bágt í alla staði...fannst mér.  Sjálfsvorkunin var óendanleg.  Allir voru að gera á minn hlut...fannst mér.  Ég var náttúrlega nafli alheimsins...LoL

Eftir að ég hélt af stað upp fjallið, í átt að andlegu heilbrigði þá hef ég öðlast nýtt líf.  Andlega upplifun hef ég öðlast.  Ég reyndar sá það ekki fyrr en mér var bent á það, af mínum heittelskaða.  Ég hélt nefninlega að andleg upplifun fælist í að fá eldingu í skallann...eða eitthvað álíka!!

En nei, mín andlega upplifun hefur m.a. falist í því að ég er í dag líkamlega heil líka.  Ég er ekki lengur bakveik kona, sem þarf að liggja frá nokkrum sinnum á ári út af skessuskoti (eða þursabiti...eftir hvar maður er á landinuTounge). 

Að hugsa sér, að mín líkamlegu veikindi skildu stafa af andlegri vanlíðan.  Vanlíðan út af ýmsu sem ég hef upplifað um ævina.

Þannig að þið sjáið, mig langar aldrei aftur að heimsækja helv... been there, done that!  Og ég óska engum að vera þar. 

Því miður veit ég af fólki þar, fólki sem mér þykir vænt um.  Ég fæ sannarlega að upplifa minn vanmátt...mig langar sannarlega að grípa inn í og BJARGA þessu fólki. 

En ég veit, af fenginni reynslu, að ég get ekki bjargað neinum nema sjálfri mér...með aðstoð ÆM.

Hins vegar get ég verið góð fyrirmynd, sýnt út á við að ég er ekki sú sem ég var, sýnt með framkomu minni að ég hef öðlast nýtt líf.  Og það geri ég, eftir fremsta megni.

Einu sinni gaf Einarinn minn mér lyklakippu sem mér þykir svo óendanlega vænt um, á henni stendur:

18.11.98 - This day my new life began!

--

Over and out!   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Fallegt, Sigrún mín. Komandi frá fallegri konu. Til hamingju með lífið.

Hugarfluga, 29.1.2008 kl. 14:55

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Góður pistill og falleg gjöf.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.1.2008 kl. 15:22

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elskulega vina, ég samgleðst þér svo innilega, þú ert svo heil í öllu sem ég hef kynnst að það hvarflar ekki að manni í fyrstu að þú sért búin að þramma gegnum helv.  en hinn ÆM er það besta og hjálpar mann í gegnum þunnt og þykkt það er víst og satt.  Takk fyrir að deila þessu með okkur og eigðu ljúfastan dag. 

Ásdís Sigurðardóttir, 29.1.2008 kl. 15:54

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 29.1.2008 kl. 19:55

5 Smámynd: Berglind

Sæl Sveitamær.

Takk fyrir kommentið á blogginu mínu. Ég svara því hér.

Það geta allri komið í þessa prjónagrúppu. http://groups.yahoo.com/group/garnaflaekja/?yguid=320545851

Hér er slóðin á hana. Þú þarft að sækja um aðgang, með því að skrifa aðeins um þig og þína handavinnu. Svo verður þú samþykkt og getur verið með okkur!!

Kveðja

Berglind

Berglind , 29.1.2008 kl. 20:30

6 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 30.1.2008 kl. 00:40

7 identicon

Alltaf svo ljúft og notó að lesa pistlana þína *knús* til þín mín kæra :-)

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 12:33

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

yndisleg færsla, takk fyrir að deila þessu með okkur.

Kærleikur og Ljós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 30.1.2008 kl. 14:18

9 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Hljóp hlýja í hjartað við þennan lestur.

Linda Lea Bogadóttir, 30.1.2008 kl. 16:59

10 identicon

Ég elska bloggið þitt, mér finnst þú þessa fulkomna kona sem ég hélt að væri ekki lengur til. þú hugsar djúpt og ert á andlegum nótum, ósérhlífinn, elskar svo mikið umhverfi þitt (Einarinn þinn og börnin). Ofan á allt þetta ertu ofurkona í handavinnu, eldhúsinu og hjúkrar sjúkum. Þú virðist geta allt á þinn hárfína hátt, þar sem ást og alúð fara saman.

Það eru forréttindi að lesa um slíka konu. En segðu mér eitt hvað gerðist 18.des1998. Geturðu miðlað svo fleiri fái að njót.

Ein sem dáir þig á bloggonu og afstöðu til lífsisn. Sigríður H

sigríður H:Jónsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 05:29

11 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk fyrir þetta öll sömul.

Sigríður, ég bara fæ tár í augun! Takk fyrir kærlega. Ég vil endilega segja þér - og öðrum sem vilja heyra - meira frá því hvað gerðist 18. nóv. 1998, og í framhaldinu, en vil ekki gera það hérna á blogginu.  Endilega sendu mér tölvupóst á sveitamaerin[at]yahoo.dk og ég miðla þér af reynslu minni.  

Með kærleika

SigrúnSveitó, 31.1.2008 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband