Leita í fréttum mbl.is

Töffarinn...

...hann Jón Ingvi er kominn á HJÓLASKÓ!!!  Mikil gleði og hamingja, og nú æfir hann sig stíft!!  Nína er verslun hérna á Akranesi og þar fengum við þessa líka fínu hjólaskó, með frönskum svo hann þarf ekki einu sinni að reima!!  Gæti það verið betra?  Ég held bara ekki.

Fórum líka á kaffihúsið, Skrúðgarðinn (þetta sem ég hef oft dásamað).  Jón Ingvi fékk uppáhaldið sitt; malt og kleinu á meðan ég fékk mér tvöfaldan Latte.  Þvílík sæla.  Svo sátum við þarna og sögðum fátt, því það verður seint sagt um hann Jón Ingva að hann sé málglaður Happy En við nutum samverunnar engu að síður.  

Jamm...svo er best að ég gangi frá því sem ég var að versla í Bónus...svo er vinnan bráðum...

Ást... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

koss

jóna björg (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 14:35

2 Smámynd: Bergþóra Guðmunds

ja,,það er sko fjör á hjólaskóm,,Brynjar eren að bíða,,enn þeir voru uppseldir i hans nr. 

góða helgi

Bergþóra Guðmunds, 28.9.2007 kl. 14:41

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Bergþóra, fórstu líka í Maraþon í Kringlunni? Þau fengu sendingu í gær...en kannski allt uppselt strax...

SigrúnSveitó, 28.9.2007 kl. 14:45

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hafð fallegustu helgina

AlheimsLjós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.9.2007 kl. 14:53

5 identicon

takk fyrir ammlis kveðjuna hér að neðan, var fyrst að sjá hana núna.

ást og kossss sæta mín 

jóna björg (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 14:54

6 Smámynd: Hugarfluga

Ji, í alvöru!? Strákana mína langar svo í svona skó, en ég (vonda stjúpmamman) held að þetta sé einhver bóla. Hvað kosta svona skór á Skaganum?

Hugarfluga, 28.9.2007 kl. 22:06

7 Smámynd: SigrúnSveitó

4990 á Skaganum...5990 í Maraþon í Kringlunni...9990 í Intersport...allt mismunandi framleiðendur...  vertu nú góða stjúpan!!

SigrúnSveitó, 28.9.2007 kl. 23:09

8 identicon

Ég er oft að hugsa þegar ég mæti krökkum á þessum hjólaskóm "hvernig geta þau haldið jafnvægi á þessu" ... hlýtur að þurfa mikla tækni.  Hverju verður fundið upp á næst?? :-D  

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 10:06

9 Smámynd: SigrúnSveitó

Góð spurning frænka; hvað verður fundið upp næst?!!!  Örugglega eitthvað sem kostar okkur foreldrana PENINGA!!!   Jón Ingvi er enn að læra tæknina að renna á þessum skóm...systir hans er fljótari að læra svona.

SigrúnSveitó, 29.9.2007 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband