Leita í fréttum mbl.is

Of lítill tími!!!

Ég er búin að komast að einu!  Ég hef of lítinn tíma fyrir föndur!!  Vinnan er eitthvað að flækjast fyrir mér!! LoL Langar að gera svo margt.  Er á fullu að prjóna (myndir af því koma EFTIR jól!!) og svo langar mig að skrappa.  Reyndar er ég komin með garn í ýmis verkefni, því eins og ég segi, það er svo margt sem mig langar að búa til.  Þyrfti að sleppa kvöldvöktunum því einhvernveginn eru kvöldin betri kostur fyrir prjónana.  En skit pyt, ég er t.d. að fara á ráðstefnu á morgun svo þá ætti ég að ná að prjóna alveg heilan helling!!!  

Ég er voða ánægð með mig, var í ræktinni í morgun og hef alveg staðið við gefin loforð (loforð sem ég gaf sjálfri mér) og mætt mánudag-miðvikudag-föstudag.  Reyndar get ég ekki farið allar vikur þessa morgna...ég þarf stundum að vinna líka Wink ...en þá get ég farið aðra daga í staðinn.  Þetta er mjög gaman.  Fullt af kerlum, svo sitja þær og drekka kaffi og kjafta og hlæja á eftir.  Ég er ekki farin að taka þátt í því enn...sjáum hvort það komi...eða ekki?! Hver veit.  Kannski kemur að því að mig langi að vera með í því, kannski ekki.

En núna ætla ég að smella mér í sturtu og þvo af mér storknaðann svitann...áður en ég næ í Jón Ingva í skólann.  Við ætlum að ath hvort það séu til hjólaskór á hann í ákveðinni verslun hérna á Akranesi...og kíkja á kaffihúsið á eftir.  Eiga smá "kvalitetstid sammen" InLove

Ást... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ohh ég er alveg sammála þér með þessa vinnu - tekur alltof mikinn frítíma frá manni :-D  Hafið það gott um helgina sæta fjölskylda ;)

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband