Leita í fréttum mbl.is

Alveg glötuð!!!

Held ég hætti hér með að vera með "afmælisbörn dagsins" á síðunni minni.  Undanfarna daga hafa ýmsir mér tengdir eða ótengdir átt afmæli.

15. ágúst: Siggi, 36 ára.  Siggi er maður Erlu systir. 

19. ágúst: Trausti, 39 ára.  Trausti er fyrrverandi mágur minn.  Var giftur Erlu systir í mörg ár.  Þar fyrir utan voru hann og Einar (minn heittelskaði) saman í Reykjaskóla fyrir mörgum árum síðan.

21. ágúst: Þórður, 38 ára. Þórði kynntist ég á djammárunum í Reykjavík.  Þórður var sá eini sem tóki mig á orðinu og heimsótti mig til Englands 1992.   

23. ágúst: Stebbi Pálma, 69 ára.  Stebbi er pabbi Eyþórs, sem var kærastinn minn fyrir 20 árum (hugsið ykkur, fyrir 20 árum!!!!!).  Ég bjó heima hjá Stebba og Hallbjörgu, konunni hans, í 3 ár.  Þau reyndust mér vel þessi ár og hafa alltaf átt stað í hjarta mínu, rétt eins og ég veit að ég á enn stað í þeirra hjörtum.

24. ágúst: Sölvi, bróðursonur minn, 5 ára.  Sölvi er sonur Gunnars bróðir.  Því miður þekki ég Sölva ekkert, hef hitt hann mjög sjaldan.  En hver veit nema úr því verði bætt í framtíðinni?!!! Ég vona það.

25. ágúst: Ævar Steinn, systursonur minn, 5 ára.  Ævar Steinn er sonur Maríu systir.  Ævar Steinn bræddi hjarta mitt þegar ég sá hann fyrst, þá var hann 3 mánaða.  Hann bræddi það enn meir þegar hann heimsótti okkur til Danmerkur sumarið eftir, þá 10 mánaða.  Brosið hans...OMG!!! Frænkutetrið bráðnaði eins og súkkulaði í smá sól!!!

Jamm, elskurnar mínar allar.  Þið lesið örugglega ekki bloggið mitt, en ég óska ykkur engu að síður til hamingju með dagana ykkar.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ, sys. Mér telst svo til að Trausti minn hafi orðið 39 ára 19. ágúst sl. enda fæddur 1968. En svo má til gamans geta að Sigurður (minn núverandi) varð 36 ára 15. ágúst  Ég er sammála  þér, það eru alveg rosalega margir sem maður þekkir sem eiga afmæli í ágúst, bæði börn og fullorðnir. Heyrumst fljótlega, knús E. 

Erla Helga (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 14:30

2 Smámynd: SigrúnSveitó

leiðrétti þetta í hvelli ;) ruglaðist eitthvað í þessu öllu...

SigrúnSveitó, 26.8.2007 kl. 14:32

3 Smámynd: Tanni Ofurbloggari

eruðihættaðbyggja?????????????????????????????????????????????????????????????????????????????

Tanni Ofurbloggari, 26.8.2007 kl. 17:04

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með öll afmælisbörnin. Hvernig hefur prjónaskapurinn gengið um helgina??

Ásdís Sigurðardóttir, 26.8.2007 kl. 17:25

5 Smámynd: SigrúnSveitó

Neibb, ekki hætt að byggja...þarf bara að læra að minnka myndirnar áður en ég set þær inn...úr nýju vélinni eru þær svo stórar að það tekur fleiri tíma að senda nokkrar myndir inn...lofa að bæta mig, elsku Tanni!!

Ásdís, prjónaskapurinn gengur fínt.  Nú fer ég alveg að senda þér mynd ;) 

SigrúnSveitó, 26.8.2007 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband