Leita í fréttum mbl.is

Blessuð blíðan

Eins og sönnum íslendingi sæmir þá verð ég að tjá mig um veðrið...aftur!!!  Það er geðveikt rok, ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum!!  En Kjalarnesið hefur þó verið vel fært, þar sem það hefur ekki verið "vitlaus" átt!!  Og svo framarlega sem ekki verður mannskaðaveður á laugardaginn þá förum við mæðgur á Laugarveginn og upplifum ekta íslenska Þorláksmessustemmingu.  Tengdó ætlar að koma með, sem er bara æði.  

Ég hringdi aftur í Sigrúnu frænku áðan.  Frábært að heyra í henni aftur...eftir alltof mörg ár.  Svo nú get ég leiðrétt mig og sagt að Agla, dóttir hennar, er sko 1½ árs, ekki á fyrsta ári...en svona líður tíminn hratt, ég bara var viss um að hún væri enn kríli!!!  Við frænkurnar ákváðum að hittast fljótlega, eða eins og t.d. í febrúar þegar ég er búin í prófinu.  Nú fer ég að fresta lífinu fram yfir próf...

Mjög gaman í vinnunni í dag...ef það kemur á óvart.  Hóf undirbúning fyrir prófið.  "Hjúkrunargreiningar", svona fyrir þá sem það skilja.  Gaman að því.  

Við mæðgur fórum á fund í kvöld.  Skotta var ánægð með sinn fund og ég var himinlifandi með minn.  Fyllir mig af orku og gleði.  Lífið er ljúft.  Langar að deila með ykkur spakmæli dagsins; "Að gefa öðrum góð ráð er það sama og blanda mér í annara manna mál.  Að gefa sjálfri mér góð ráð er það sama og að þroska sjálfa mig"

Á morgun ætlum ég og börnin að baka.  Við ætlum að baka "afakex", sem er uppáhald Einars.  Fullar af sykri.  Svo ætlum við að baka einhverjar smákökur handa mér líka = sykurlaust.  Eitthvað frá Sollu.  Ammara-nammara.  Svo skellum við örugglega í þessa brúnu sem á að vera á aðfangadagskvöld (þessi brúna með frostingnum...það eru ekki jól hjá Einari annars) og í frystirinn.  Nenni ekki að baka á laugardaginn líka.  Svo þetta verður allsherjar bökunardagur á morgun.  

Svo á ég eftir að kaupa 3 gjafir...klára það fljótlega... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, þetta er nú meira ruglið með veðrið....og fólkið okkar verður á þeyting á milli...alveg hægri vinstri í óveðri alla dagana skilst mér ;/ doldið óþolandi !!  En vonandi komast allir á leiðarenda og flóðin meiga líka alveg fara að minnka....  Svona er Ísland í dag !!

Eníveis....hafið það gott og heyrumst og sjáumst :)

kv.frá Selfoss

Elín Eir Jóhannesd (IP-tala skráð) 22.12.2006 kl. 12:32

2 Smámynd: SigrúnSveitó

tata...sjáumst 2. í jólum.  Ertu búin að skipuleggja hver okkar á að koma með hvað?

SigrúnSveitó, 22.12.2006 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband