Leita í fréttum mbl.is

Prjóni pjón á sófanum!

Ég prjónaði bleika vettlinga í fyrrakvöld, litla og sæta. Á 3ja ára stelpuskott. Nú er ég að vona til að komast í *langferð*...alla leið í Borgarnes, jafnvel í næstu viku! Þar er prinsessuskott sem átti 3ja ára afmæli um daginn og á eftir að fá pakka frá frænku sín :)

Svo var ég að vandræðast í gær, á 2 dokkur af Alpaca garni, sem ég fékk í afmælisgjöf í leik sem ég tók þátt í á síðasta ári. Ég eyddi heillöngum tíma á netinu til að finna eitthvað til að prjóna úr því...fann svo eitthvað sem ég gat hugsað mér að gera...byrjað...rakti svo upp. Þetta garn er ekki alveg málið fyrir mig! Ég er meiri lopakerling. Svo ég byrjaði að enn einum ermunum, í þetta skiptið úr tvöföldum plötulopa! 

Áður er ég búin að gera einar rauðar (man ekki úr hvaða garni) og einar svartar með lopapeysumynstri, úr Alfa.

Svo var Jóhannes að leggja inn vettlingapöntun í morgun...hann sem fékk vettlinga í fyrradag...!!

Jamm. Svona er lífið á sófanum í dag...prjóni prjón...sófi um sófa frá sófa til sófa...

Molinn:

"Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur"!!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Finn ekki prjónapúkann minn svo prjónarnir eru farnir að rykfalla hér á bæ.  Á slatta af garni (afgöngum sem þarf að prjóna úr) þó svo ég hafi láti tengdó fá fullan hankapoka af garni sem var óvart verslað umfram í kjólaævintýrinu í sumar.   Skil ekki hvað ég gat reiknað vitlaust haha....rúmlega 2 kjólar umfram.  Hefði ekki þurft að vera nema u.þ.b. 1 ef rétt hefði verið talið.  Svo núna bíð ég bara þess að púkinn komi heim.

Kv. úr sveitinni.

JEG, 3.2.2009 kl. 16:52

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Æj, en glatað. Ég væri alveg í mínus ef prjónapúkinn minn myndi týnast :( Vona að þinn rati sem fyrst heim aftur!

Knús í sveitina, sæta mín.

SigrúnSveitó, 3.2.2009 kl. 19:17

3 Smámynd: Dísa Dóra

ohhh vildi að ég ætti svona virkan prjónapúka.  Minn felur sig alltaf svo vel að ég finn hann allt og sjaldan og stutt í einu.

Dísa Dóra, 3.2.2009 kl. 21:38

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Love you girl.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2009 kl. 22:43

5 Smámynd: Renata

...ég verð að dusta rykið frá prjónapúkanum mínum, fyrst var hann í sólarlandaferð núna bara á bak við sofa. Mér bara klæjar í putta að sjá ermana hjá þér, flottir!!

Renata, 5.2.2009 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband