Leita í fréttum mbl.is

Örstutt...

...fyrir svefninn.

Ég er komin heim, bara ljúft. Reyndar var farið vel með mig á SHA, en það er alltaf best að vera heima.

Einar eldaði þvílíkt góðan mat handa okkur, grillaði lambalærisneiðar og hafði ofnsteiktar kartöflur og piparostasósu með...slafr... Ég borðaði yfir mig. Sick

Yndislegt að vera með í lífinu heima aftur, knúsa og fá knús fyrir nóttina. InLove Að upplifa að geljukrúttið okkar er enn svo mikið stelpuskott, þó hún sé á fullu að reyna að slíta sig frá okkur. Engin drama*köst* í kvöld þó, en smá *urr* samt Wink

Ég er nokkuð hress en ætla mér að taka fyrirskipun læknisins eins alvarlega og ég mögulega get...ég má EKKERT gera í heila viku!!! Ekki auðvelt...sérstaklega þar sem ég er vön að sjá um heimilið í mínum *frítíma* enda Einar í húsbygginu í sínum *frítíma*. En hann klárar þetta eins og ekkert sé, þessi elska. 

Svo á ég að mæta til doktorsins 11. feb. og þá ákveðum við hvenær ég má byrja að vinna aftur (ég reikna með að byrja 12. feb...) og hvenær ég má byrja að æfa og fæ læknisvottorð og ef það er fleira sem ég man ekki núna...

Jamm. Ég get lítið annað sagt en lífið er dásamlegt. 

Molinn í dag er stuttur en hann segir nákvæmlega það sem þarf:

"Hamingjan er ferðalag, ekki áfangastaður." 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 23.1.2009 kl. 07:56

2 identicon

Gott að þú sért komin heim mín kæra og farðu nú ofurvel með þig.  Kossar og knús

Særún

Særún (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 12:13

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góðar fréttir, alltaf best að vera heima hjá sér.  Segi enn og aftur, farðu extra vel með þig mín kæra og eigðu ljúfa helgi

Ásdís Sigurðardóttir, 23.1.2009 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband