Leita í fréttum mbl.is

Dottin úr karakter!!!

Jamm, ég er dottin úr karakter...en eins og danirnir segja svo skemmtilega; "Man har et standpunkt til man ta´r et nyt!!"!!!

Þannig að...ég fór á völlinn...AFTUR...!!!  Mér var hleypt inn...og Skagamenn töpuðu aftur, þó ekki eins stórt og síðast.  Nú fer gæfan að snúast "okkur" í hag.

Munið samt, og það er eitthvað sem mun ALDREI breytast (maður má VÍST stundum segja ALDREI!), að ég ER og VERÐ NORÐFIRÐINGUR!!!

Ég get sagt ykkur...í fullum trúnaði...að ég fór sjálfviljug á völlinn, EInar spurði mig ekki hvort ég kæmi með, ég sagði sjálf að ég ætlaði...mig dreymdi ÍA-FH í nótt...úff...en hver veit, kannski þetta rjátlist af mér...eða ekki...hver veit?!!! 

Smelli hér með inn mynd af okkur hjónakornum á leið á leikinn um síðustu helgi.

Gul og Glöð :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kokkurinn Ógurlegi

þetta stefnir ekki vel með skagaliðið,  allveg ótrúlegt að þetta lið sem er skipað í raun mjög góðum knattspyrnumönnum, nái bara ekki að smella saman,  enn og aftur myndi það hriggja mig ef þeir féllu úr deildinni, þar sem það eru jú 6 örugg stig fyrir FH á Hverju sumri að spila við skagann :-) bið að heilsa kallinum

Kokkurinn Ógurlegi, 27.7.2008 kl. 23:19

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þið eruð svo flott hjón og peysurnar fara ykkur vel  maður verður sko bara að hafa gaman af þessum bolta.  Eigðu ljúfa vinnuviku dúllan mín

Ásdís Sigurðardóttir, 27.7.2008 kl. 23:36

3 identicon

Ég hef ekki farið á völlinn í mörg ár eins og það var nú gaman en að fara á völlinn hér í henni Ameríku kostar bara hönd og fót þannig að ég er alveg dottin út úr öllu. Reyni samt að fylgjast með þeim enska eins og ég get. Hafðu það gott, Svanfríður.

Svanfríður (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 02:58

4 identicon

Fór ekki vel hjá ykkar mönnum í þetta skiptið (og reyndar nokkur fyrri skipti)  en gott að þér var hleypt aftur inn á völlinn :)  Þið takið ykkur ægilega vel út í stuðningslitunum, um að gera að hafa gaman að þessu ... saman hjónakornin :)  knús til ykkar!

ps.  fer ekki að koma tími á skonsu-kaffi á Hjalla?  Það er alltaf svo mikið um að vera hjá ykkur (reyndar líka á þessum bæ) svo við þurfum að fara bóka dag? :)

 

Raggý frænka ... FH-ingur (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 07:24

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 28.7.2008 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband