Leita í fréttum mbl.is

Laugardagur 1. mars

Náði ekki að blogga í gær!

Dagurinn byrjaði 7.30.  Við brunuðum til R.víkur á stóran fund þar sem við hittum fullt af skemmtilegu fólki.  Vorum þar fram að hádegi og ég græddi helling af andlegri vellíðan og upplýsingum.  Yndislegt alveg hreint.

Svo var brunað heim, og ég fór að taka til og undirbúa kvöldmatinn.

Benni (tengdapabbi) og Jóna kíktu í kaffi. 

Stuttu síðar birtust kvöldmatargestirnir; Ragnhildur og Inga. Kvöldverður sem var planaður fyrir ca 2 mánuðum síðan...ekki mjög íslenskt að ákveða svona langt fram í tímann...en það var samt þannig! 

Svo rétt á eftir kom pabbi.  Langþráð, enda hefur hann ekki komið síðan um jólin og hefur bara aldrei liðið svona langt...ekki síðan við fluttum heim...og varla nema rétt yfir hásumarið meðan við bjuggum úti!

Þegar þau öll voru komin þá fórum við upp í hús.  Ragnhildur og Inga sáu húsið síðast þegar það var ekkert hús...bara platan komin.  Svo það hefur orðið mikil breyting! 
Pabbi sá húsið síðast áður en gluggar komu í og allt opið, svo honum þótti líka margt hafa gerst!

Heima áttum við svo góða stund, borðuðum góðan mat og fengum svo franska súkkulaðiköku í desert.

Þessi kaka var breytt uppskrift, notaði 70% súkkulaði í stað suðusúkkulaðis og Agavesíróp í stað sykurs.  Hún var bragðgóð, en ekki blaut eins og hún á víst að vera...með suðusúkkulaði og sykri.  En látið mig vita ef þið viljið breyttu uppskriftina.

Í dag er svo paragrúppa og pabbi ætlar að passa :)

Mikil gleðihelgi!!   Love is in the airHeart!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Katrín Jónsdóttir Ármann

Knús

María Katrín Jónsdóttir Ármann, 2.3.2008 kl. 10:12

2 identicon

Takk fyrir síðast og takk kærlega fyrir okkur!!  Yndisleg stund með familíunni og geggjaður matur ;)   Eigið góðan sunnudag!

ragnhildur frænka & inga hrönn (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 11:01

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Indæl helgi hjá ykkur Skagafjölskyldunni.  Gaman af því.  Takk fyrir komment hjá mér elskuleg, þú verður heimsótt og lesin reglulega, ekki hægt að sleppa því.  Hlakka til þegar við hittumst næst.  Kærleiksknús  Girls Rule

Ásdís Sigurðardóttir, 2.3.2008 kl. 13:07

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að lesa færsluna en hef ekkert að segja.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.3.2008 kl. 14:08

5 identicon

Hæ hon.

Gaman að heyra að súkkulaðikakan hafi virkað. Við verðum að prófa hana fyrir ferminguna. Ætla að vera með upprunalegu útgáfuna í veislunni og það væri gaman að hafa eina sykurlausa útgáfu líka. Bæði fyrir þig og gesti með diabetes.

Hlakka svo mikið til þegar þú kemur. Hugsa alltaf með mér þegar ég fæ kvíðakast yfir þessum tveimur stóru veislum: ,,Þetta reddast þegar Sigrún kemur". Annars bakaði ég tvær kaniltertur í dag og þær eru svo sannarlega mikil handavinna. En vonandi gleður afraksturinn bróður okkar - þetta er uppáhaldskakan hans. Jú, og svo er ég að setja krem og súkkulaði á ca. 150 Sörur Bernhardsdætur.

Knús, Lilja

Lilja Guðný (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 22:36

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Valdís...ég sleppti sko alveg 3 dögum úr í febrúar...en það er ekkert of gott...!!

Lilja, ég hlakka sko líka til. Við hristum þetta fram úr ermunum ;)  

SigrúnSveitó, 2.3.2008 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband