Leita í fréttum mbl.is

Konudagurinn

Ég var spurð að því nokkru sinnum í gær hvort maðurinn minn hefði ekki gefið mér blóm í tilefni dagsins.  Þegar ég svaraði því neitandi komu athugasemdir eins og; "Jiii hvað hann er mikil lumma" eða "En hann leiðinlegur"...eða "En hann órómantískur" og bla bla bla.

Ég svaraði einni svona; "Hann gefur mér ást alla daga og mér finnst það yndislegra en nokkur blóm".  

Og þannig er það!  

Afhverju er sá sem ekki kaupir blóm á konudaginn endilega ömurlegur...leiðinlegur...órómantískur?  Eins og einhver sagði; ég kaupi ekki blóm á "þar-til-gerðum-degi" heldur frekar alla hina dagana!

Við áttum kósí-sjónvarps-þátta-kvöld í gær og borðuðum Dominos pizzu með! Sem við fengum frítt í ofan á lag!  Einar pantaði á netinu og fór svo að sækja...fékk þá að vita að það væri eitthvað að tölvukerfinu svo pantanir gegnum netið bærust ekki á Skagann...þess vegna fékk hann pizzurnar fríar. Við vorum sátt við það!  Pöntuðum samt bara pizzu af því að það var mega-vika og allar pizzur á 1150.  Ég fékk mér Dominos Extra, sem ég er búin að vera í nettri þráhyggju yfir síðan einhver í vinnunni var að dásama þessa tilteknu pizzu...ok, búin að prófa hana og geri það EKKI aftur!! Fannst hún ekki góð.  Bara best að fá með pepperoni, sveppum og gráðosti!!

Nóg um pizzutal...ætla að elda hádegismat handa ofur-virka manninum mínum...hann fór upp í hús 5.30 í nótt!!!  Hafði vaknað 4.30 og ekki getað sofnað aftur...hann virðist geta lagt inn svefn...svaf eitthvað frameftir laugardag og sunnudag...og er greinilega búinn með svefnkvótann í bili!!!  

Jamm, ég skil þetta ekki...en svona er það nú samt!

Eigiði yndislegan dag, elskurnar mínar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Voðalega er fólk eitthvað takmarkað. Hver segir svona? Eins og karlmenn séu skyldugir til að gefa blóm á þessum degi. Uss ... þú veist best hvað þú átt og það skiptir engu máli hvað einhverjum öðrum finnst. Hljómar nú meira sem öfund hjá fólki yfir því hvað þið eruð ástfangin, if you ask me.

Knús inn í daginn, sæta kona.

Hugarfluga, 25.2.2008 kl. 10:20

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Já, það er alveg satt, ég veit best hvað ég á!  Enda er ég ekkert að láta þetta skipta mig máli, mig langaði bara að segja frá þessu ;) Fyndið bara.

Knús tilbaka... 

SigrúnSveitó, 25.2.2008 kl. 10:24

3 identicon

Já þetta er fyndið með þessa daga, vissi ekki að konudagurinn var í gær og persónulega vill ég ekki fá blóm þegar þá Á að gefa blóm, frekar þegar hann langar til þess eins og í síðustu viku þegar ég fékk túlipana alveg óvænt.

jóna björg (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 10:42

4 identicon

Sammála með þessa Dominos extra.það er nú vondi maturinn !!

Inga Hrönn (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 12:20

5 Smámynd: Anna Guðný

Sæl Sigrún! Lanagar að spyrja þig í sambandi við uppskriftirnar, ertu búin að prófa þær þegar þú setur þær inn?

Anna Guðný , 25.2.2008 kl. 15:02

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ dúlla.  Hér voru engar rósir, heldur ást og kærleikur eins og alltaf.  Fæ aldrei blóm á konudaginn og vei þeim sem mundi kalla manninn minn lummó.  Ég veit hvað ég hef og hann þarf ekki að láta segja sér hvenær hann á að færa mér blóm.  Hann gerir það oft en aðeins þegar hann langar að vera extra næs

Ásdís Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 15:09

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

rétt og satt kæra sigrún !!!

Bless í bili

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 15:23

8 Smámynd: SigrúnSveitó

Anna Guðný; Já, ég er búin að prófa uppskriftirnar og myndi aldrei setja inn uppskrift sem mér þykir vond ;)

SigrúnSveitó, 25.2.2008 kl. 15:58

9 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Takk fyrir þessa færslu... Eva konan mín er 100% sammála því sem þú segir. 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 25.2.2008 kl. 16:42

10 Smámynd: SigrúnSveitó

Yndislegt að heyra, Gunnar.  Það er ekkert betra í þessum heimi en ástin

SigrúnSveitó, 25.2.2008 kl. 17:22

11 Smámynd: Renata

Ég er nákvæmlega skoðunar eins og þú

Því miður það er ennþá keppni í sumum hver fékk mest í gær frá karlinum.

...og Dominos, don´t let me start about it...verstur pizzur ever. 

kveðja Renata 

Renata, 25.2.2008 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband