Leita í fréttum mbl.is

Sunnudagur á Höfðabrautinni

Rólegheit hjá okkur hérna.  Einar reyndar fór á fætur kl. 05.00 í morgun og í vinnu fljótlega.  Ég hins vegar rumskaði við drengina einhverntímann í morgun...held þeir hafi sofið eitthvað lengur en til kl. sjö...en ég vaknaði hins vegar ekki fyrr en kl. 10.30 en þá hringdi síminn minn til að minna mig á að það væri körfubolti...ég reyndi að lokka Jón Ingva af stað, en hann hafði talað um að hann vildi prófa körfuna.   Hann vildi ekki fara, sagðist vera hættur við...ætlar að einbeita sér að golfinu sem hann byrjaði í s.l. fimmtudag!  Mér finnst bara frábært ef hann finnur einhverja íþrótt sem hann hefur áhuga á, og ég sé hann alveg fyrir mér í golfinu...röltandi um...engin hlaup fyrir minn mann ;)

Við (ég, Ólöf Ósk og Jóhannes) erum búin að fá okkur rölt út í Krónu.  Svo ætla ég að rölta með Jóhannes á eftir til tengdó...þarf að losa drenginn við orku ;) hehe...  

Svo var ég sko að baka...og mikið er ég þreytt á þessum ofni okkar...!! Ef ég ætlaði mér ekki að flytja þá myndi ég sko fá mér nýjan...ofninn mishitnar svo að kökurnar urðu einum og dökkar sumsstaðar og það er alveg glatað! 

En það þýðir ekki að fást um það...best að fara að gera krem á herlegheitin! 

Sigrún bloggar...hún er alltaf að...Sigrún bloggar...ég held nú það!!! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 10.2.2008 kl. 18:49

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að lesa færsluna en hef ekkert að segja.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 10.2.2008 kl. 21:47

3 identicon

nei þetta er ekki sami nágranninn, en reyndar er þetta allt svolítið mikið mikið öðruvísi, en þessi mál fara bara sína leið í rettarkerfinnu,börn hér í húsinu fá martraðir vegna hauks hennar beggu, þetta er allveg með ólíkindum hvað manneskjan lætur út úr sér.            ps maðurinn hennar "sem er 52 ára" er reyndar með löghemili hjá tengdó,svo réðst hann á annan nágranna (konuna við hliðina) og framdi meira að segja húsbrot þar,hér helgina eftir að hann réðst á mig.................. so ekki trúa öllu sem þú heyrir, en ég held samt ekki að beggan sé neitt slæm þegar hún er hún sjálf.

nágranninn (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 23:17

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Úbbs er ekki færslan hér á undan á vitlausum stað??  Hafðu það gott Sigrún mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.2.2008 kl. 23:44

5 Smámynd: SigrúnSveitó

Ja hérna hér!

SigrúnSveitó, 11.2.2008 kl. 07:28

6 identicon

ju,,,hun er ekki á réttum stað,,,æ,,sumir bara geta ekki komið hreint fram,,alla vega ekki hér i ,,holtinu,,

Bergþóra Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband