Leita í fréttum mbl.is

Jæja...

...nenni ekki að blogga...en get ekki sleppt því.  Það er ekki hægt að blogga ekki í TVO daga!!! 

Reyndar var ég að vinna í gær, og var bara búin á því þegar ég kom heim.  Nennti ómögulega að setjast við tölvuna, vildi frekar dunda með ungunum mínum.  Svo eldaði ég líka góðan mat handa okkur hjónakornunum.  Reyndar var ég bara yfir mig hrifin af matnum, ég ELSKA mekíkanskan mat.  Einar var ekki eins spenntur, þótti þetta alveg mjög fínt...en hann er meira svona "kjúlli-franskar-og-kokteil-maður"...

En það sem ég eldaði var:

ca. 4 kjúklingabringur
Ostasósa (mexíkönsk)
Salsasósa
ostur
1 poki Doritos snakk

Kjúklingabringurnar skornar í bita, steiktar á pönnu og kryddaðar vel eftir smekk (ég kryddaði þær með taco-kryddi). Snakkið (aðeins mulið) er sett í botninn á eldföstumóti.  Ostasósan þar ofan á, svo Salsasósan.  Síðan er kjúllinn settur yfir og að lokum osturinn.
Sett inn í ofn í 15-20 mín. á ca 200°C.

Svo "á" að bera þetta fram með salati og hrísgrjónum, og sýrðum rjóma og guacamole...en ég sleppti grjónunum og salatinu...

---Hrafnhildur

Svo er það afmælisbarn gærdagsins.  Elsku vinkonan mín, hún Hrafnhildur, er afmælisbarn gærdagsins.  Knús og kossar til þín, elsku vinkona, með þakklæti fyrir yndislegan vinskap!

Vonandi var dagurinn þinn alveg yndislegur. 

Hlakka til þegar þú flytur nær mér ;)

--- 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ duglega stelpa, alltaf gaman að lesa blogg frá þér.  Hafðu það gott elskið mitt. Kveðja á skagann.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.2.2008 kl. 14:52

2 identicon

Takk elskan mín.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband