Leita í fréttum mbl.is

31. janúar

Ég var að spá hvort ég ætti að blogga um afmælisbarn dagsins.  En ákvað að linka inn á færsluna sem ég skrifaði fyrir ári síðan.  Þá varð hann fertugur og er því 41 í dag. 

Afmælisbarnið er Eyþór Stefánsson

Mér finnst svo skrítið að hugsa til þess að Eyþór sé 41.  Alveg eins og mér finnst skrítið að hugsa til þess að minn heittelskaði verður fertugur eftir rétt rúmt ár!  Og hann er bara skólaárinu eldri en ég...þó ég sé miklu seinna í árinu. 
Ég held að mér þyki þetta skrítið því ég man svo vel eftir því þegar mamma varð fertug.  Þá buðu hún og Jón Þór okkur, börnunum sínum, og einum vinahjónum út að borða á stað sem hét "Við höfnina" og var staðsettur við Hafnarbraut í Neskaupstað.

Þetta var dagurinn sem mamma komst að því að ég reykti...(er löngu hætt!!!).  Mér fannst mamma náttúrlega óttaleg kelling..."sú gamla"...enda var ég ekki nema 19 ára.  

Í dag er mamma 58 ára, ég er 37 og mér finnst hvorug okkar gömul eða kelling!!  Hins vegar þykir dóttir minni við (ég og mamma) vera GAMLAR!!!  

Svona er þetta afstætt.  En sjálfsagt af því að í svo mörg ár var FERTUGT og ÞRÍTUGT reyndar líka, alveg hræðilega hár aldur og þess vegna finnst mér skrítið að vera að nálgast fertugt sjálf...vinir mínir að skríða...eða jafnvel skriðnir þangað fyrir einhverjum dögum, vikum, mánuðum eða jafnvel árum!

Jamm...þið skiljið kannski hvað ég er að reyna að útskýra...ef ekki þá bara skítt með þaðLoL

Knús til ykkar allra þarna úti, og auðvitað sértakar kærleikskveðjur til afmælisbarnsins, hvar sem hann er niðurkominn.  Ég óska þess að hann hafi fundið hamingjuna og fegurðina í hjartanu sínu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Sigrún!Flott síða ég var að ADDA þér í favorites hjá mér.Taka svo á því í powertímanum ég ætla bara að njóta bumbunar minnar.....hihi   Kveðja Þóranna

Þóranna (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 14:23

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Hæ Þóranna! Velkomin, gaman að þú kíktir við :)
Já, þú skalt sko njóta bumbunnar, það er fátt yndislegra en að vera með svona bumbu eins og þú
Knús... 

SigrúnSveitó, 31.1.2008 kl. 14:29

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, ég skil þig svo vel.  Man þegar ég varð þrítug, agalegt en fertug ekki eins slæmt, fimmtug bara stuð.  Held þetta fari doldið eftsir því líka hversu vel eða illa manni líður og hvernig staðan er í lífun hjá manni.  Kær kveðja til þín vina mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 31.1.2008 kl. 16:38

4 Smámynd: Hugarfluga

Hvaða aldur sem er er flottur, ef hugurinn og heilsan eru í lagi.

Hey og takk fyrir kommentið á uppskriftasíðu okkar vinkvennanna!

Hugarfluga, 31.1.2008 kl. 16:53

5 Smámynd: SigrúnSveitó

Mér finnst ekkert mál að eldast, fannst ekkert mál að verða þrítug.  Mér finnst bara svo skrítið að segja þessar tölur upphátt! :)
Úff, horft til baka þá er líf mitt svo MIKLU betra í dag en það var, svo ég vildi sko ekki skipta og verða tvítug aftur!! No way!!!

Já, ok, ert þú ein af matgæðingunum?!!  Hehe, að ég skildi ekki fatta það, þegar ég sá tvíbökuðu kartöflurnar! Hugsaði til þín og allt!!! 

SigrúnSveitó, 31.1.2008 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband