Leita í fréttum mbl.is

Vetur!

Mér finnst eiginlega fyndið hvað allt fer upp í loft þegar það kemur vetur.  Töluðum oft um það í Danmörku að þar færi allt í pat...en hér virðist það líka gera það.  En samt ekki á sama hátt.  Mér þótti t.d. mjög indælt í morgun, þegar ég fór með Jóhannes í leikskólann og hin tvö í skólann að ég gat verið viss um að starfsfólkið væri mætt til vinnu!  Ekki fast einhversstaðar "ude på marken"!

Hins vegar vælir fólk og pípir..."það er SVOOOOOOO kalt"!!!!  "Ooooooohhhhh (gremjuhljóð) viljiði SJÁ veðrið!!!"  

Jamm.  Vitiði hvað mér finnst frábært?  Að heyra vindinn gnauða úti.  Ég á svo margar góðar minningar frá dögum þar sem vindurinn blés, skafrenningur!  Við systur, ég og Lilja, úti að grafa snjóhús í stórum skafli, stungum bara hausnum inn í holuna í mestu vindhviðunum.  Allt á kafi í snjó!  Ófært.  Vera keyrt á snjósleða í skólann!  Eða á Zetor á þorrablót!
Mér finnst æði að sjá börnin mín upplifa snjóinn.  Jón Ingvi LENGI á leiðinni heim úr skólanum því það er svo mikið að gera leika á leiðinni heim.  Rjóður í kinnum og með gleðibros á fallega andlitinu.
Jóhannes hlaupandi í snjónum með stórt bros. 
Ólöf Ósk nýtur þess líka að hafa snjóinn, hún hefur verið úti með strákunum að leika í snjónum...eitthvað sem hún nennir nú ekki oft að gera! 

Bara yndislegt.

Og núna ætla ég að koma þreyttum drengjum í rúmin sín! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Tek sko undir þetta með þér. Skil ekki þetta væl í fólki yfir veðrinu.  Nennir enginn að takast á við neitt lengur? Ég elska snjó og rok og skafla, það er svo ótrúlega gefandi að takast á við náttúruna og klæða sig eftir veðri, lenda í smá ófærð og svo bara njóta útsýnisins út um gluggana. Flet höfum við gott atlæti og húsaskjól og eigum bara að vera hamingjusöm, ég man þegar ég bjó fyrir norðan og fór á snjósleða á ball, ein af þessum eðal minningum. Hafðu það gott elskan mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.1.2008 kl. 20:36

2 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Já það er oft eins og við séum að snjó í fyrsta sinn. Annars held ég að þetta sé mest vegna þess að snjórinn truflar svo oft daglegt líf margra. Það þarf ekki mikinn snjó hér í Reykjavík til að umferðin fari öll í hnút og alls konar skipulag fer út um þúfur hjá fólki. Ég hef alltaf verið hrifin af snjó og vetri, finnst þetta bara notalegt og oftast skemmtilegt, margar góðar minningar tengdar snjó :)

Thelma Ásdísardóttir, 25.1.2008 kl. 22:10

3 Smámynd: Hugarfluga

Ég hálföfundaði einmitt strákana þegar þeir komu inn þreyttir, rjóðir og kaldir, en alsælir.  Man hvað það var gaman í svona miklum snjó og hvað það var góð tilfinning þegar hitinn fór að ná fram í táslur og putta aftur og maður fann þreytuna ná yfirhöndinni. Besti svefn í heimi er eftir ærsl í snjónum!

Hugarfluga, 25.1.2008 kl. 23:39

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég man líka eftir svona vetrarveðrum á íslandi, frábært í minninguni, fengum viku svona í fyrra hérna í dk. hafðu fallegan dag mín kæra Bless steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 09:16

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég man líka eftir svona vetrarveðrum á íslandi, frábært í minninguni, fengum viku svona í fyrra hérna í dk.

hafðu fallegan dag mín kæra

Bless

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 09:16

6 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Það er alltaf gott að labba úti í vonda veðrinu, finna vindinn blása í bakið og heyra vindinn gnauða í öllu sem fyrir er. Túnglið veður í skýjum, mismunandi fullt og það besta af öllu er: Maður er EINN með sjálfum sér.

Fæ alltaf orku úr svona vondu veðri.

Svo er svo sætt með kerti í glugga, eitthvað heitt í bolla, "soft" úr útvarpinu og  allir húsandar kofans með manni.

Gunni Palli kokkur. 

Gunnar Páll Gunnarsson, 26.1.2008 kl. 11:24

7 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Snjórinn! hann er bara fínn á þessum tíma, svo framarlega sem ekki eru mikil hríðarveður, og já börnin, þau elska þetta hvíta efni sem er hægt að móta og hnoðast í, gera snjóhús o.m.fl.  Var að vinna á leikskóla í nokkur ár, og þessir litlu ormar mínir þar voru aldrei eins sæl og þegar hægt var að böðlast í snjónum

ljós 

Guðrún Jóhannesdóttir, 26.1.2008 kl. 11:26

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fæ aldrei nóg af snjó - mér finnst þetta frábært veður. Ösla út í skaflana á morgnana með Stubbaling. Maður þarf bara að passa sig að vera nógu vel klæddur!!

Hrönn Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 12:27

9 Smámynd: Dísa Dóra

Man að það sem ég saknaði einna mest þegar ég bjó í svíþjóð var einmitt almennilegur snjór og brjálað veður hreinilega.  Elska bara snjóinn og flest allt sem honum fylgir

Dísa Dóra, 26.1.2008 kl. 13:29

10 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég fæ heimþrá þegar það er brjálað veður hér í Svíþjóð... skrýtið.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.1.2008 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband