Leita í fréttum mbl.is

Þessi er mest fyrir Jónu Á...

...en auðvitað megið þið hin vera með Wink

Forsagan að þessum fyrsta fundi mínum við tengdó...

Ég og Einar hittumst fyrst í nóvember 1994...og ekkert spennandi við það.  Kalda janúarnótt 1995 hittumst við aftur og áttum saman ...ástarfund... og síðan ekki söguna meir...

...nema ca 3 vikum síðar er óléttuprufan jákvæð...

...úpps...ekki alveg planið að fara að eiga barn...ein...maður sem ég þekkti ekkert...en ok, örlögin og allt það...!!

Nema hvað, við vorum sem sagt ekki kærustupar og hann fór á sjó vestur á firði.  Svo við sáumst ekkert.  

Í september lufsaðist hann loksins til að segja mömmu sinni frá þessu janúarævintýri...og að það væri barn væntanlegt í heiminn eftir nokkrar vikur.

Mömmu hans þótti ótækt að hafa ekki hitt þessa konu sem bæri barnabarnið hennar undir belti...en hann vildi ekkert blanda sér í þau mál...

...en var samt svo sætur að segja mér frá hverju ég ætti von á...sem sagt símtali.

Þetta er sem sagt forsagan að þessum fyrsta hittingi okkar Siggu Báru.

Sigga Bára hélt sambandi við mig, fannst barnið eiga rétt á að þekkja föðurfólkið sitt þrátt fyrir að við ætluðum ekki að vera saman, ég og pabbinn sem sagt.  

Svo okkar samband þróaðist og úr varð hið besta samband, löngu áður en hún varð tengdamamma mín.

Það var svo í desember 1996, eða þegar prinsessan okkar var 13 mánaða að augu okkar opnuðust fyrir hvort öðru.  Reyndar hafði ég nú verið ægilega skotin í honum þarna í byrjun árs 1995...en komst yfir það.

Hvað gerðist þarna í byrjun des. 1996 veit ég ekki...en það sér sem betur fer ekki fyrir endann á þeirri hamingju InLove

Jamm, þá vitið það...dóttir okkar var skot í myrkri...sem varð svo stóra ljós lífs okkar Heart

Ólöf Ósk

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bryndís R (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 11:04

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Myndaleg stelpa... til hamingju

Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.1.2008 kl. 12:56

3 Smámynd: Hugarfluga

Allt er svoo gott sem endar vel! Myndarstelpa, sem þið eigið!

Hugarfluga, 20.1.2008 kl. 14:53

4 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 20.1.2008 kl. 23:34

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Frábær saga

Hrönn Sigurðardóttir, 21.1.2008 kl. 10:12

6 identicon

Krúttsaga

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband