Leita í fréttum mbl.is

Laugardagur til lukku

Ég svaf á mínu græna til hálf 10...með nokkrum "vöknum" frá kl 6.37.  Strákarnir voru, sem sagt, vaknaðir frekar snemma...og voru að bíða eftir danska barnatímanum sem byrjar kl. 7.00.  Svo heyrði ég ekki mikið í þeim fyrr en þarna upp úr kl. 9. 

Smellti mér framúr og gerðist aktív.  Lét þvottavélina skola og vinda þvottinn sem ég nennti ekki að hengja upp í gærkvöld, setti svo í aðra vél, bjó til berjamix handa okkur mæðgum í morgunmat (frosin jarðarber, AB-mjólk og Agavesíróp) nammi namm!  

Íþróttaskólinn var kl. 12.20 og það er svo gaman að fylgjast með Jóhannesi þar.  Hann blómstrar þegar kemur að hoppi og skoppi.

Jón Ingvi var búinn að bjóða afa sínum og ömmu í vöfflukaffi, en því var frestað til morguns.  Hann hlakkar voða mikið til.  Þetta er framtakssemi í honum.  Dugnaðardrengurinn okkar InLove

Mikið á ég erfitt með að finna eitthvað í matinn þessa dagana.  Við höfum ekki gert vikumatseðil síðan fyrir jól, og mikið svakalega munar um það.  Mér finnst svo gott þegar við höfum öll verið með í að ákveða matseðilinn, þá slepp ég alveg við að bræða úr heilanum úti í búð...

En mér tókst samt að ákveða matseðil kvöldsins:

Lambakjöt og ofnsteiktar kaftöflur, skornar í báta og kryddaðar með basilíku, bernais og ofnbakað grænmeti:

púrrulaukur, gulrætur, sveppir, sæt kartafla (hefði sett broccoli...en hausarnir sem voru til í Krónunni voru ekki lystugir...), hvítlaukur.  Sett á pönnu og mýkt svolitla stund.  Svo setti ég rjóma, hvítlauksost, grænmetiskraft (einn tening), basilíku og pipar út í.  Lét ostinn bráðna og setti svo í eldfast mót.

Slafr...hlakka til að borða kvöldmat!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jummí girnó

Bryndís R (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 16:09

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þetta er stimpillinn minn – Gunnar Svíafari

Gunnar Helgi Eysteinsson, 19.1.2008 kl. 16:39

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

namm - hvenær er matur?

Hrönn Sigurðardóttir, 19.1.2008 kl. 17:04

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jammí

Jóna Á. Gísladóttir, 19.1.2008 kl. 17:38

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æðislegur matur nammi namm.  Ég bakaði spelt brauðið í gær, æðislega gott, bakað það 20.mín lengur en sagt var og þá var það fínt.  Verði ykkur að góðu kvöldmaturinn.  Salad  Place Setting

Ásdís Sigurðardóttir, 19.1.2008 kl. 17:43

6 identicon

jummí hljómar vel hjá ykkur!  :) Við ætlum að launa okkur með steik á veitingahúsinu .. smá verðlaun eftir afrek dagsins!  Hafið góða helgi!

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 18:05

7 Smámynd: Hugarfluga

Mmmm þú ert svo mikill listakokkur. Hér á heimili var eldaður besti hamborgari í heimi (eða svo sögðu strákarnir) og ég held að það séu bestu meðmæli sem ég hef fengið með eldamennsku minni .. hehe.

Hugarfluga, 19.1.2008 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband