Leita í fréttum mbl.is

Gleymdi mér alveg í gær...

...og sagði ykkur ekkert frá skrappinu!! Hnuss&fruss!!!

En sem sagt...;

Það var rosa gaman.  Við systur skemmtum okkur vel í félagsskap hvor annarar til og frá Kópavogi og svo skemmtum við okkur vel á sjálfu námskeiðinu og lærðum helling.

Erla gerði opnu í albúm með elsta barnið sitt, Birgi Elís (sem átti afmæli sama dag) í aðalhlutverki.  Fótboltaferillinn.

Ég gerði opnu með Báru, elstu okkar, frá fermingardeginum hennar.  

Þetta var, þó ég segi sjálf, mjög flott hjá okkur.  Við erum snillar Smile

Næsta mál á dagskrá mun þess vegna líklega vera að finna tíma til að skappa meira og meira...og svo ætlum við systur að sjálfsögðu að halda skrappkvöld og svona...

---

Í dag er ég búin að afreka smá.  Ætlaði reyndar ekki að hafa mig á lappir í morgun...en það hafðist...svo ég náði að smyrja nesti handa börnunum og senda þau af stað í skólann...í rokinu...

Svo dútluðumst við Jóhannes hérna til kl að verða 9, þá fórum við í leikskólann og svo fór ég sko að æfa.  Mjög ánægð með sjálfa mig því ég var ekki að nenna...en þar sem ég keypti ÁRS áskrift þá er eins gott að hætta ekki á 2. viku...50 more to go!!! LoL

---

Þetta er sem sagt lífið hjá mér þessa dagana... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Úrsúla Manda

Gat ekki annað en hlegið,  ég er alveg miður mín yfir þessu "agaleysi" og skipulagsleysi hérna á vöggustofunni hennar Ingibjargar og VIL FÁ sama form og er heima á meðan þú vilt þetta... fyndið. En ætli ég fengi svo ekki sjokk ef næsta barn færi í leikskóla heima þar sem allt er niðurnjörvað! Hugsa það.

Úrsúla Manda , 26.9.2007 kl. 11:23

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Mér fannst leikskólinn hérna á Íslandi fínn áður en ég flutti út og kynntist FRELSINU!!!
Mér finnst bara prívat og persónulega vera alltof mikið lagt upp úr að leikskólinn eigi að verða hluti af skólakerfinu.  Hvenær eiga börn að fá að vera börn ef ekki meðan þau eru í leikskóla...í það minnsta!!  

Ef ég hyggði á frekari barneignir þá myndi ég líklegast neyðast til að stofna nýjan leikskóla hérna á Skaganum, að dönskum sið

En leikskólinn er ekki alslæmur og ég er orðin mun sáttari en ég var fyrir ári síðan...eða hálfu ári síðan.  Og það mikilvægasta er að Jóhannesi líður vel!!!

LUV... 

SigrúnSveitó, 26.9.2007 kl. 11:41

3 identicon

*kvitt*kvitt* :)

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 15:50

4 Smámynd: Dabban

hvar varstu á skrapp námskeiði? á ekkert að skella inn myndum af síðunum?  

ég fór heila helgi í skrappholt að skrappa fyrir 2 vikum ... bara gaman

Dabban, 26.9.2007 kl. 20:31

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hvað er skrapp? Skreppið þið eitthvað?

Hrönn Sigurðardóttir, 26.9.2007 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband