Leita í fréttum mbl.is

Ég fékk...

...bókarsendingu í gær...af því að ég er í bókaklúbbi þar sem þarf að afpanta bók mánaðarins og ég gleymi ansi oft að afpanta...venjulega endursendi ég, en í þetta skiptið ákváðum við að halda bókinni...það var bókin "Leyndarmálið" eða "The Secret".  Byrjaði aðeins á henni í gær þegar ég kom heim úr vinnu og komst að því sem ég vissi fyrir...bækur eru hið besta svefnmeðal...amk. fyrir mig!!  Svo ég las ekki nema formálann og 2 bls. Sleeping

Annað sem ég gerði í gær, ég byrjaði í líkamsrækt!  Það heitir Curves og er bara fyrir konur.  Mér líst vel á þetta.  Ákveðin í að styrkja bakið mitt svo ég fái ekki aftur svona skessuskot eins og ég fékk fyrir nokkrum vikum!!  Svo væri í góðu lagi að missa smá af þessu sem kemur út fyrir buxnastrenginn!!  Þetta sem sumir kalla "ástarhöldur"...ég kalla þetta nú venjulega efri vömbina og dellurnar!!! LoL

Ég er núna á eftir að fara í tíma nr. 2, fæ annan byrjendatíma.  Það sem kom mér af stað er að vinkona mín vinnur þarna...þá var ég ekki eins mikið Palli er einn í heiminum...Tounge  

Annars er allt gott að frétta.  Bún að vera að vinna og svona.  Á morgun fer ég svo á fræðsludag, sár og sáraumbúðir...spennandi!  Langar að læra meira um svoleiðis.  Þó þetta sé kannski svolítið litað af því að það er heildsali sem er með þessa kynningu...  En það verða tveir danir...sem reyndar halda sínar tölur á ensku...en það verður fínt.

Jamm, þetta er svona lífið hjá mér í dag...og í gær.

Ljós og Kærleikur... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Gangi þér vel í ræktinni. Akkúrat ár síðan ég byrjaði og þetta er allt annað líf að sprikla soldið í hverri viku. Við kannski sjáumst í næsta Barðsneshlaupi???

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 20.9.2007 kl. 10:22

2 identicon

Hef heyrt margt gott um þessa bók "Secret" ... þú setur kannski inn  smá pistil um hana þegar þú klárar.  öhmm þ.e.a.s. ef þú sofnar ekki alltaf yfir henni :-Z   thíhí

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 12:43

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Flott að vera komin í æfingar. Ég er alveg í dal núna, geri ekkert. Ég horfði á secret á DVD, þetta er voða mikið common sence en alltaf gott að ryfja upp góða hluti. Þú ert nú svo dæmalaust heilbrigð á sálinni að ég held þú þurfir ekki að lesa Secret. Knús og klemm

Ásdís Sigurðardóttir, 20.9.2007 kl. 13:03

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Gummi; það er draumurinn minn að taka þátt í Barðsneshlaupi, en hnéð mitt verður að skera úr um það...hljóp í tæp 2 ár og reif þá liðþófa, fór í aðgerð í feb. s.l. en er ekki orðin nógu góð enn.  En hver veit?!!

Ragnhildur...; já, ef mér tekst að vaka nógu mikið til að lesa alla bókina...híhí...

Ásdís; Takk :) En það eru allir að tala um Secretið svo ég er forvitin.  Þó ég viti alveg hvert ég sæki minn andlega bata ;) 

SigrúnSveitó, 20.9.2007 kl. 13:40

5 Smámynd: Bergþóra Guðmunds

ja,,´eg er að bíða eftir bokini secret a safninu,,upppöntuð allstaðar,,langar svo að lesa það semallir eru að tala um að það sé svo frábær lesning. knús frænka

Bergþóra Guðmunds, 20.9.2007 kl. 21:06

6 Smámynd: SigrúnSveitó

knús tilbaka, frænka.

SigrúnSveitó, 20.9.2007 kl. 23:18

7 identicon

Keypti mér secret í fríhöfninni á leiðinni heim og er að lesa hana, mjög góð. 

knússss 

jóna björg (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 08:19

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hvernig leikfimi er Curves? Ég er sjálf í sundleikfimi og þar eru líka bara konur. Ekki þó vegna þess að karlar séu ekki leyfðir - heldur miklu fremur vegna þess að þeir þora ekki....

....kannski finnst þeim þetta vera soldil kellingarleikfimi..... svona eins og samhæft sund

Hrönn Sigurðardóttir, 21.9.2007 kl. 13:57

9 Smámynd: SigrúnSveitó

Hrönn, þú getur lesið um Curves HÉR! Þetta er tækja- & pallaæfingar, maður fer 3 hringi og tekur það ca hálftíma.  Maður er hálfa mínútu á hverri stöð og það er rödd sem segir; "Change station now" þegar maður á að skipta.  Svo er einu sinni í hverjum hring sem maður "á" að telja púslinn til að sjá hvort maður er að taka nógu vel á!! Mjög gaman...vona að mér þyki það áfram því ég keypti mér árs áskrift...

SigrúnSveitó, 21.9.2007 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband