Leita í fréttum mbl.is

Sárt að sakna

Í gærkvöldi skreið uppgefinn Jóhannes upp í rúmið sitt og kúrði með mömmunni sinni.  Ég söng fyrir hann lagið "Nína" og þar segir m.a. "Það er sárt að sakna einhvers...".  Þá grípur sá stutti inn í og segir; "Já, eins og mér finnst sárt að sakna Idu"!!!  Crying

Sami molinn og spurði ekki alls fyrir löngu hversu gamall maður þyrfti að vera til að mega flytja að heiman...18 ára, var svarið.  Þá heyrðist í þeim stutta; "Þegar ég verð 18 ára ætla ég að flytja til Idu".  

Já, það eru sannarlega mikil heilabrot og fullt af tilfinningum í höfðinu á honum.  Hann var tæplega 3 ára þegar við fluttum heim frá Danmörku, og þá hafði hann þekkt Idu alla hennar ævi.  Þau "hittust" fyrst þegar Ida var 12 daga gömul, en hún er upp á dag 2 mánuðum yngri en Jóhannes.  Hann var 3½ þegar við bjuggum hjá Idu og fjölskyldu í 4 vikur og þau léku sér daginn út og daginn inn.  Svo í sumar náðum við að hitta þau 2svar á þessari viku sem við vorum úti.  

Jón Ingvi varð einmitt mjög leiður í gær. Vegna þess að vinur hans frá Danmörku (íslenskur samt) er á landinu og ætluðu þau að koma til okkar í dag.  Jón Ingvi var búinn að hlakka mikið til, en svo æxluðust bara hlutirnir þannig að þau urðu að afboða sig.  Mikið varð drengurinn minn leiður.     

Það er enginn vafi á að tengslin eru sterk.  

Við vorum af þessu tilefni að ræða þetta í dag, ég og Einar.  Mér finnst svo mikilvægt að halda í þessi tengsl.  Milli Jóhannesar og Idu og eins milli Jóns Ingva og Camillu, bestu vinkonu hans í Danmörku.  Ég vona að ég geti skroppið til Græsted í viku með vorinu...þó það sé langt þangað til...en það væri æði.  Auðvitað líka fyrir mig Wink

Ég fæ eiginlega bara töluvert illt í hjartað yfir þessu.  Finnst sárt að hafa rifið drengina úr þessum mikla vinskap.  En hins vegar er svo margt líka hérna heima sem þeir eru að njóta, afar og ömmur, frænkur og frændur.  Og svo eru þeir búnir að eignast sinn hvorn vininn hérna líka og það er ljúft. 

Jamm og já, það er sárt að sakna.

Og ljúft að elska InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Aðeins að svara bananaspurningunni frá þér :)  Ég hita hann  frekar mikið, verður pínu gumsaður og heitur.  Mér finnst það voða gott, og ekki vera að gluða eplunum útí :)

Danadrottning (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 18:30

2 identicon

Hæ sætust - æðisleg færsla, gullmolar þessi börn.  Já við vitum það Sigrún mín að kærleiksríkt vinasamband er gulli betra og ég þakka Guði fyrir þig, Áshildi, Dönu, Helgu, Anný og mig sjálfa!!!  Við erum bestar!

knús knús

Særún (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 21:40

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

AlheimsLjós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 06:35

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ljúfir drengir synir þín greinilegt.  Það er ekki stofnað til kynna fyrir einn dag í þinni fjölskyldu, þið kunnið greinilega að njóta því sem best gefst í lífinu, góðir vinir og góð fjölskylda.  Knús til ykkar allra.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 10:46

5 Smámynd: Hugarfluga

En þegar fólk í draumum manns birtist allt er ljúft og gott ..... það er svo gott að geta dreymt og eiga góðar minningar. Knús til þín.

Hugarfluga, 22.8.2007 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband