Leita í fréttum mbl.is

Óspennandi og fullt af túristum

Já, ég er að tala um bláa lónið.  Hins vegar er umhverfið stórkostlegt, og mjög sérstakt að sjá blátt vatn mitt úti í hrauni.  

Sjálft bláa lónið finnst mér óspennandi, og allt öðru vísi en það var þegar ég fór þangað síðast...held örugglega að það hafi verið 1991...frekar en 1988...!!  

Annemarie fannst þetta stórmerkilegt, en vildi bara stoppa stutt.  Ólöf Ósk hefði náttúrlega getað legið þarna allan daginn, en hún elskar vatn svo það eru ekki nýjar fréttir.  Hins vegar er hárið á henni eins og barbiehár á eftir...svo ég veit ekki hvort hún vill fara aftur!!

Við mægður komum við í miðborg Reykjavíkur á leiðinni heim.  Áttum erindi á Laugaveginn.  Vá, æðislegt veður þar.  Hefði sko verið til í að vera með fullt af peningum...skreppa í búðarráp...og sitja svo á kaffihúsi fram á kvöld og hafa það náðugt.  En það verður seinna...þegar ég verð orðin rík á því að vera hjúkka!!! HAHAHA....LoL

Heima var Jón Ingvi, hann fór til eyrnalæknis (með pabba sínum) meðan ég var í burtu...annað rörið dottið úr, svo nú er engin ástæða að hafa eyrnatappa í vinstra eyra meir.  Við vonum það besta, svo hann sleppi við aðra röraísetningu með haustinu!!

Jóhannes fékk stuð í puttann uppi á byggingasvæði.  Hann var að skoða heiminn og rakst þar á óvarinn rafmagnskaðal...snertir sennilega ekki slíkt aftur.

Litli molinn minn.  Ég þarf alltaf að vera að knúsa þetta skinn...meira en venjulega...og kreista hann vel...ég er svo þakklát fyrir að hann er heill á húfi eftir að atvikið með bílinn um daginn.  

Já, og svo er pabbi kominn heim frá Hong Kong og er hann að spá í að kíkja á okkur um helgina.  Alltaf gaman og gott að fá hann í heimsókn.  Yndislegur hann pabbi minn.

En nú ætla ég að leggjast upp í rúm og hvíla lúin bein...og svo er það harkan sex á morgun...læri, læri, lær...(sko ekki lambalæri eða neitt slíkt, nema NÁMlæri...!!!).

Kærleikur til ykkar og gætið þess að hafa ekki fangið svo fullt af fortíðinni að það sé ekki pláss fyrir nútíðina. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góð hjá þér spekin í síðustu setningunni

knús

Hrönn Sigurðardóttir, 18.5.2007 kl. 21:32

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er ein af þeim sem hef aldrei farið í BLáa Lóni og mun aldrei gera, finnst þetta ömó.  Takk fyrir áminninguna, hún er góð.

Ásdís Sigurðardóttir, 18.5.2007 kl. 21:43

3 identicon

jemin .. fannst þér Lónið ömó?!!  Algjör perla og í miklu uppáhaldi hjá okkur skvísunum :)  Eina sem er ömó er verðlagið .. fer ekki nema á tveir-fyrir-einn tilboði!  :D  Ætluðum einmitt að fara í dag í sólinni en Laugar-sprikl og sól á svölunum var tekið framyfir.  Aðallega af því það er STÓR-leikur í boltanum í dag og sumir mega ekki missa af því :)  Flott síðasta setningin hjá þér frænka!  *knús&kram*

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 07:53

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Sælar stúlkur.

Já, þetta er góð speki.  Held mikið upp á hana.

Bláa Lónið...finnst það kannski ekkert ömó, en ekki sérlega spennandi heldur.  Reyndar verður húðin skemmtilega mjúk...en hárið...úff...Ólöf Ósk er búin að þvo sitt og setja helling af næringu en er enn með barbiehár...

En verðlagið, það er fáránlegt!!! 

SigrúnSveitó, 19.5.2007 kl. 09:09

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

æi, er ekki bláa lónið dásamlegt, fór þangað í fyrra með vinu mínum honum morten, og fannst það svo fallegt, vorum þar í marga tíma. á meðan ég man þá er það gunni kokkur sem gerir alltaf mat á þorrablótinu sem er maðurinn minn. svar við gamalli spurningu frá þér sem ég hef ekki munað eftir að svar.

ljós til þín kæra sveitamær

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.5.2007 kl. 22:18

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Æi nei, voða lítið dásamlegt. Fer samt örugglega þangað aftur ef útlenskir vinir óska eftir því.  Veit samt ekki hvað ég á að gera við hárið á dóttir minni...það er enn eins og barbiehár...

Ok, þá veit Einar amk hver Gunni er

SigrúnSveitó, 20.5.2007 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband