Leita í fréttum mbl.is

Morgunbænirnar mínar

Drottinn, ég fel mig þér á vald, til þess að þú megir byggja með mér og gera við mig eins og þér þóknast.  Leystu mig úr sjálfsfjötrunum svo mér auðnist betur að lúta vilja þínum.  Taktu frá mér erfiðleikana til þess að sigurinn yfir þeim megi bera vitni um mátt þinn, kærleika og lífsvegu, gagnvart þeim er ég leitast við að hjálpa.  Hjálpaðu mér alltaf að gera vilja þinn.

 

Skapari minn, nú er ég þess albúin að þú takir við mér, eins og ég er, með kostum mínum og göllum.  Ég bið þig að losa mig við alla þá skapgerðarbresti sem varna því að ég geti orðið þér og meðbræðrum mínum að gagni.  Gefðu mér styrk til að gera vilja þinn er ég geng héðan út.

 

"Skapari minn, ég bið þess að mér verði gefinn styrkur og
handleiðsla til að koma rétt fram, hverjar svo sem afleiðingarnar
verða fyrir mig.  Ég bið að þú leiðir mig á braut þolinmæði,
umburðarlyndis, góðvildar og kærleika."

 

"Guð ég bið þig að stýra hugsunum mínum og ég bið að þær
verði lausar  við sjálfsvorkun, óheiðarleika eða eigingjörn áform.
Ég bið þig að gefa mér innsæi, hugsun eða ákvörðun, innblásna
af þér.  Viltu leiða mig gegnum daginn, skref fyrir skref og gefa
mér það sem ég þarfnast til að geta tekist á við verkefnin.  Ég
bið þess sérstaklega að fá að vera laus við sjálfshyggju.  Verði
þinn vilji.”

Mér finnst þetta yndislegar bænir og þær hjálpa mér til að fókusera á það góða í lífinu og þar með að eiga góðan dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

thú og bænin erud dásamleg !

ljós og kærleikur til thín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.4.2007 kl. 12:32

2 identicon

jóna björg (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband